Halldór Jón Sigurðsson, landsliðsþjálfari U19 kvenna, hefur valið leikmannahóp til þátttöku í lokamóti EM sem fer fram í Bosníu dagana 25. Júní til 10. Júlí næstkomandi.
Valur á fimm glæsilega fulltrúa í hópnum, þær Arnfríði Auði Arnarsdóttur, Helgu Rut Einarsdóttur, Hrafnhildi Sölku Pálmadóttur, Ragnheiði Þórunni Jónsdóttur og Sóleyju Ingadóttur.
Næsti leikur í Bestu deildinni er á laugardaginn 13. júní. Þór/KA mætir í heimsókn á N1 völlinn og leikur hefst kl. 16:15.
Við höfum ákveðið að það verði frábært veður, pylsur á grillinu og ískaldur á krana. Þetta er alveg borðleggjandi. Full stúka og stemning. Sjáumst þar! 🦅
Leikdagur!
🔴 Valur - Víkingur
📍 N1 Völlurinn
🕓 19:15
Við minnum á söfnuna fyrir Ingvar Jónsson, markvörð Víkinga, sem á í erfiðri baráttu við krabbamein. Þeir sem vilja leggja málefninu lið geta keypt #áframingvar styrktarmiða á Stubb: https://t.co/4DJcRFFBoH
Á morgun sunnudag kl. 19:15 fáum við Valsarar Íslandsmeistara Víkinga í heimsókn á N1 völlinn.
Eins og fram hefur komið stendur markvörður Víkinga, Ingvar Jónsson, í erfiðri baráttu við krabbamein.
Allir leikmenn og starfslið Vals kaupa styrktarmiða á leikinn til stuðnings Ingvari og við hvetjum alla sem geta til að gera það sama.
Venjulegur aðgangsmiði er 3.000 kr.
Samsettur miði: Aðgangsmiði á leik + #ÁframIngvar styrkur 5.000 eða 8.000 kr.
Á sunnudagskvöldið taka okkar menn á móti Víkingum á N1 vellinum.
Leikurinn hefst kl. 19:15, en við stefnum auðvitað á alvöru upphitun í Fjósinu frá kl. 17:00 þar sem Jóhann Alfreð og Arnar Sveinn Geirsson munu stýra umræðum.
Tómas Þór Þórðarson, þingmaður, Evrópusinni og grjótharður stuðningsmaður Víkings rýnir svo í leikinn með strákunum.
Að sjálfsögðu verða svo grillaðir Valsborgarar fyrir svanga og ískaldur á krana fyrir þyrsta. 🍔🍻
Næsti leikur í Bestu deildinni er heimaleikur gegn Þrótti, föstudaginn 29. maí kl. 19:15.
Nú væri gaman að sjá alla Valsara fjölmenna rauðklædd á völlinn og ná upp alvöru stemningu og stuði.