Nú eru hlutabréfaviðskipti í gegnum frábæra appið okkar og netbanka án kaup- og söluþóknunar til 29. nóvember!
Í appinu er einfalt að fylgjast með markaðnum í rauntíma. Sjá nánar hér: https://t.co/iXqVZyZ0fC
Nú stendur yfir almennt hlutafjárútboð í Ísfélagi hf., elsta starfandi hlutafélagi landsins. Rafrænar áskriftir fara fram í gegnum áskriftarvef Arion banka.
Nánari upplýsingar um skilmála útboðsins má finna á https://t.co/UMlR3KF3nT
Ný hagspá Arion banka sem birt er í dag gerir ráð fyrir að hagvöxtur verði 4,5% í ár, sem er nokkur lækkun frá okkar síðustu spá í maí. Í stað eftirspurnardrifins hagvaxtar er nú útlit fyrir að utanríkisverslun, með ferðaþjónustuna fremsta í flokki, dragi vagninn í ár.
Fjárfestingarkeppni Arion fyrir nemendur HÍ og HR stendur nú yfir. Markmiðið með keppninni er að efla fræðslu um fjárfestingar og sjóðastýringu og gera nemendum kleift að kljást við raunveruleg verkefni úr atvinnulífinu. Ert þú búin/n að skrá þig? Veglegir vinningar í boði.
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bankans um 0,5 prósentur. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 9,25%. https://t.co/BbDNwikAou
Hlutabréfakaup eru hagstæðust hjá Arion banka þegar fjárfest er fyrir minna en 250þ kr. þar sem ekki er tekin lágmarksþóknun. Markmiðið er að gera verðbréfaviðskipti að vænlegum kosti fyrir almenna fjárfesta þrátt fyrir að fjárfest sé fyrir lágar upphæðir. https://t.co/DkoFEUKOjq
Arion banki var með mestu hlutdeildina í bæði hlutabréfum og skuldabréfum í október. Það hefur ekki gerst síðan í febrúar 2019 að sami aðilinn sé veltuhæstur í báðum flokkum verðbréfa en þá náði Arion einnig þeim árangri. https://t.co/7zwJrIM8c0
Í kjölfarið á umræðunni um jafnvægisgildi krónunnar á stýrivaxtafundinum á miðvikudaginn er áhugavert að líta á þann fleyg sem myndast hefur á milli raungengis krónunnar á mælikvarða launa og verðlags.
Á fyrsta fjórðungi ársins var innlent vinnuafl tvöfalt dýrara en 2009.
Húsnæðisverð á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 0,56% milli mánaða í ágúst en það hefur ekki hækkað svo mikið síðan í mars. Árshækkunartakturinn hækkaði þar með úr 2,9% í júlí í 3,6% í ágúst.
Við spáum að vísitala neysluverðs hækki um 0,15% í september og að verðbólgan lækki úr 3,2% niður í 3,1%.
M.v. skammtímalíkanið okkar sýnist okkur að verðbólgan gæti átt raunhæfan möguleika á að vera kominn niður í markmið Seðlabankans í árslok.
https://t.co/Ea7fHir2fL
Við kynntum í morgun árlega ferðaþjónustuúttekt okkar.
Við spáum því að ferðaþjónustan taki hægt við sér og að fjölgun ferðamanna verði aðeins 2% á næsta ári.
Þrátt fyrir það er ánægjuefni að neysla hvers ferðamanns hefur aukist umtalsvert.
https://t.co/zxxMesW2Lw
Við bjóðum til opins morgunfundar um íslenska ferðaþjónustu á miðvikudaginn í næstu viku í Arion banka, Borgartúni 19 klukkan 08:15.
Allir velkomnir!
https://t.co/XYCxZL5Ysy
Hagstofan leiðrétti landsframleiðslutölur sínar fyrir annan ársfjórðung í hádeginu í dag og áætlar nú að hagvöxtur hafi verið 2,7%.
https://t.co/PWoQ3JCzLd
Þrátt fyrir að bráðabirgðatölur Hagstofunnar bendi til 1,4% hagvaxtar á 2F vegna mikils samdráttar í innflutningi er varhugavert að horfa á þetta sem sterkar tölur í ljósi 30% samdráttar í atvinnuvegafjárfestingu.
https://t.co/agfB9MlJF5
Verðbólgan í ágúst var 3,2% sem er í takt við okkar væntingar en þróun undirliða kom okkur þó á óvart. Horft fram á við gerir bráðabirgðaspáin okkar ráð fyrir því að verbólgan fari undir 3% í október.
https://t.co/zYTUlnJ2up
#verðbólgutwitter
Gistinóttum fer��amanna fjölgaði um 3% milli ára í júli þrátt fyrir 17% fækkun ferðamanna í mánuðinum.
Þetta verða að teljast mjög sterkar tölur en dvalartími ferðamanna á hótelum í júlí var 24% lengri í ár en í fyrra og útlit fyrir að lengri dvalartími sé komin til að vera.