Ekkert auðveldara en að samgleðjast Grindvíkingum eftir allt það sem þau hafa þurft að ganga í gegnum. Eðlilega skiptir þetta miklu máli fyrir Grindjána. Frammistaða Pargo og þessir 10 þristar verða lengi í minnum hafðir. En miðað við CV-ið hans á þetta ekki að koma á óvart.
Björgvin Halldórsson. Þvílíkur tónlistarmaður, söngvari og performer. Ótrúlegur risi í íslenskri tónlistarsögu. Frasarnir hans og sögurnar af honum magnaðar. Röddin og lögin munu sem betur fer aldrei þagna.
Þvílíkur maður sem Davíð Oddsson var. Hann hefði ekki verið Borgarstjóri í 9 ár, forsætisráðherra í 13 ár, seðlabankastjóri í 5 ár og ritstjóri Moggans í 16 ár nema vera alvöru leiðtogi og foringi sem stóð fastur á sínu og var óhræddur við að taka erfiðar ákvarðanir.
Yrði ótrúlegt ef liðið myndi fara í gegnum þennan milliriðil með þessa heildar frammistöðu án síns besta varnarmanns og fara í undanúrslit. Það er búið að kasta til liðsins björgunarhring. Nú þarf að synda og ná í hann. Þetta gæti verið eina tækifærið í mörg ár að fara á pall.
Skrekkur fyrstu 15 mín en svo nánast óaðfinnanleg frammistaða næstu 45 mín. Ótrúleg holning á Gísla, Ómari og Janusi. Hornamennirnir 11/15. Gaman að sjá liðinu rúllað vel. Innkomur Hauks og Andra glöddu. Elliði tekur skotæfingu á morgun. Vill sjá liðið vinna Pól með 7-10 mörkum.
Það var aðdáunarvert að lesa og sjá öll viðtölin við Óskar Hrafn Þorvaldsson í erfiðri stöðu fyrir síðustu 2-3 leikina í deildinni. Var alltaf jákvæður, yfirvegaður og hélt ró sinni með stöðu mála. Sendi alltaf góð skilaboð inn til leikmanna og liðsins með tilsvörum sínum.
Það er svo lélegt að reka þjálfara 2 mánuðum eftir að hafa handsalað 3 ára samning við hann og tala nú ekki um að kveðja leikjahæsta manninn sinn í sögu félagsins eftir 13 ára samfylgd með Messenger skilaboðum. #ÍslenskurToppFótbolti
Viðtalið við Árna Gaut Arason í íþróttafréttum RÚV í kvöld var ótrúlega áhrifaríkt og situr enn í mér. Alvöru viðhorf, jákvæðni og hugarfar hjá honum þrátt fyrir erfiðan hrörnunarsjúkdóm. Tökum heilsuna og lífinu ekki sem sjálfgefnum hlut.
Get ekki sagt að ég sé hissa að Arnar Gunnlaugsson sé strax farinn að búa til lið og liðsheild hjá Íslenska landsliðinu. Verður gaman að fylgjast með framhaldinu.
Mikið hrós á FH fyrir frábæra umgjörð í kveðjuleik Arons Pálmarssonar. Og ekki síður Símann fyrir flotta pródúksjón í kringum leikinn. Vonandi eitthvað sem koma skal fyrir veturinn.
Magnað hjá Vestra. Þvílík lyftistöng fyrir Vestfirði í heild sinni. Liðið væri í 3. deild ef væri ekki fyrir þennan formann og þessa bakhjarla. Saga þjálfarans líka ótrúleg. En Leiftur frá Ólafsfirði hefur vinninginn með fæsta íbúa í Evrópukeppni.
https://t.co/8wi4jTuX4H
Það var frábært að kíkja í nýja stúdíó-ið í @handkastid og hitta þá félaga @StySig og @einarhrafnsson
Spennandi og skemmtilegt tímabil framundan í Þjóðaríþróttinni