Hahaha fatastærðir eru svo mikið djók. Keypti tvennar buxur í sömu búðinni með MOM sniði. Mátaði einar sem passa á mig eins og þæginlegur hanski og næ ekki að hneppa hinum. Munurinn er bara newmom og mom jeans. Fáránlegasta í heimi
�� kvöld er ég stolt, meyr og þakklát eftir að hafa skilað inn BA ritgerðinni minni. Ég trúi því varla að geta sagt loksins upphátt að ég sé að fara útskrifast í stað þess að það sé áætlað ❤️
Hérna hættir maður einhvern tímann að lesa og heldur áfram að skrifa eða þarf að ýta á einhvern neyðarstopp takka í skrifunum?
Kv. Frá einum BA ritgerðar skrifara sem er að missa vitið á besta hátt niður svartholið af lesefni sem hún finnur
Stundum pæli ég í því að lífið sé bara eitt stórt leikrit þar sem öll skrúfa á sig einhvern karakter sem þau móta á lífsleiðinni og að enginn (þ.m.t. ég) veit hvað þau eru að gera
Ónefndur bar í miðbæ RVK má rífa upp um sig. Þótt að einhver eigi staðinn afsakar það ekki væga líkamsárás og að brjótast inn á klósett. Sama þótt að starfsmenn viti að ólögleg efni spili inní hegðun.
Enda kvöldið á slæmum móral og sár á hálsi til að minna mig á atburði kvöldsins
Ísland tekur eins íslenkst á móti manni eftir mánaðar fríi í Litháen. Rigning í lendingi, sól og sumar í borginni og jarðskjálftar. Vá hvað ég hef saknað þín elsku litla eyja
Ætla þakka einangruninni minni í covid fyrir að kenna mér þolinmæði. Er búin að vera á bið í 2 tíma hjá SAS vegna verkfallna og ég hef sjaldan verið betri
@RanEydis Finnst eins og svona ákvarðnir ættu að fá að fara i atkvæðagreiðslu áður en þær eru teknar. Mér er fokking drull hver verðbólgan er. Ég þarf að borða og sætti mig við að borga meira í bensín,
tryggingar og allt annað. Með þessu er klárt að verið sé að ýta undir stéttarskiptingu
"Eg spyr þá á móti: er betra að borga hærri leigu í skamman tíma eða borga of mikið fyrir húsnæði?"
Herra seðlabankastjóri. Það er löngu orðið ljóst að fólk vill frekar borga of mikið fyrir husnæði en að festast a leigumarkaði
Svona ýminda ég mér að síðasti fundur ráðherra og seðlabankans hafi verið:
Fundarstjóri: Jæja krakkar, og hvað segjum við almúgan sem eiga ekki milljónir eins og þið?
Seðlabankastjóri og Lilja í kór:
It seems like a you problem 💅
Langar í alvöru að fara gráta eftir að hafa lesið fréttina um að útborgun fyrir fyrstu eign muni hækka um 5% sem þýðir að maður þarf að eiga 1/3 meira en áætlað var. Líður eins og allur sá sparnaður sem ég hef lagt til hafi lækkað til muna
Já ætli ég sé ekki grátandi yfir þakklæti og stolti yfir því að vera ennþá hér í dag og að hafa komist svo langt. Að vera innilega hamingjusöm og loksins skilja að ég eigi allt þetta góða skilið.
Já krakkar mínir, í dag á ég 25 ára afmæli og hef aldrei verið þakklátari ❤❤