@ValdiMumma Held það sé enginn með annað eins ofurrun, en Cate Blanchett átti solid run upp úr aldamótum og Domhnall Gleeson var helvíti heitur 2014/2015.
"Hvað kostar heimsending hjá ykkur?"
"499 kr."
"Geggjað! Þá ætla ég að panta þetta tilboð og fá það sent heim."
"Ó, ertu að panta eitthvað ódýrt? Þá kostar heimsendingin 1.203 kr."
Ég hata heimsendingar á Íslandi.
Lauflétt áminning á þessum sólríka sumardegi: Þið megið öll endilega taka frá 1. september fyrir bíóferð á #Kuldi!
@lingur leikstýrir henni af stakri snilld og treysti mér fyrir músíkinni, sem ég held að hafi bara tekist assgoti vel upp!
https://t.co/qy58WXfoZ5
@ingibekk Fór á svona ungmennanámskeið undir lok menntó og það var gamechanger fyrir mig. Ekki af því ég lærði e-r aðferðir eða tækni sem ég nýti mér reglulega (mikið af því var soldið prump), heldur ýtti þetta mér svakalega út fyrir þægindarammann, sem var akkúrat það sem ég þurfti þá.
Mitt innlegg í paprikuumræðu dagsins er að eldri sonur minn talar alltaf um Hamborgarapaprikuna og sá yngri vill meina að töfraorðin séu “abrika paprika” og það finnst mér bæði mjög fyndið.
Meira var það ekki.
MU: "Arsenal datt út úr Evrópudeildinni fyrir 10 manna Sporting!"
ARS: "Við töpuðum þó ekki 7-0 fyrir Liverpool!"
MU: "Vá, þú færð sama bikar fyrir að vinna 7-0 og að enda í 6. sæti!"
LIV: "Seven Hag kemst ekki nál��gt Klopp!"
OG SVO FRAMVEGIS - ENDALAUST, ALLTAF!
Ég elska fótbolta.
Ég dýrka að spila fótbolta, mér finnst gaman að horfa á fótbolta og nýt þess að tala um fótbolta.
En “fótboltabanter” er, held ég, það leiðinlegasta í heimi.
@peturgisla Í haust kom Liverpool til baka eftir ósigur gegn United og slátraði Bournemouth 9-0, en fylgja núna 7-0 stórsigri á United eftir með tapi gegn Bournemouth.
Fótbolti, maður - fótbolti!
Ef það er eitthvað gott sem hefur komið út úr því að hafa spilað með Kóngunum í nokkur ár, þá er það getan til að horfa á United leikinn í gær og hugsa: „Tjah - þetta gæti vel verið verra!“ #bjartahliðin