"Vá! Ertu ekki alveg að fara að fæða?" Er vinsælasti frasinn þessa dagana. Nei, vinur, ég á bara nóg eftir og þú þarft ekkert að minna mig á það. 🥲 Segðu frekar hvað ég er flott og blómleg eða eitthvað. #óléttutwitter
@AndriMagnason@GuOverby Hámarkshraði við Rif er reyndar lækkaður sérstaklega í kringum varptíma til þess að hlífa ungunum. Var fyrst gert 2020 og ég þykist viss um að það sé enn þannig.
Þegar ég var í fyrsta bekk fór ég að gráta við að þurfa að spila á blokkflautu fyrir framan bekkinn minn. Í dag vinn ég við að koma fram í sjónvarpi og stýrði hátíðardagskrá 17. júní í Borgarbyggð. Hugsa hlýlega til litlu Elsu skjálfandi á beinunum. Gleðilega hátíð 🇮🇸❤️
@magnusgeir@frettabladid_is Ég var svo soðin þegar ég las þetta á lokametrum næturvaktar í morgun. Núna þegar ég les þetta aftur útsofin þá er þetta enn jafn ruglað
Þessi frétt Jóns Björgvinssonar í kvöldfréttum Rúv rétt í þessu með myndefni og viðtölum héðan og þaðan frá vígstöðvunum í Úkraínu er bara eitthvað besta fréttainnslag sem ég hef séð í íslensku sjónvarpi... vel gert!
Ég hef reynt nokkrum sinnum í gegnum tíðina, nú er kjörið tækifæri. Þetta verk týndist/hvarf á Akureyri þegar ég sýndi það þar 2016. Myndin heitir Guggugulur ég væri alveg til í að fá hana heim til Ísafjarðar.