@ArniMagnusarafi@Sverrirhelga95 en annars sýnist mér helsti munurinn vera að Aur fer fram á lánshæfismat, er innan bankakerfisins og hægt að dreifa á allt að 24 mánuði vs. um 30 daga greiðslufrestinn sem einkenndi smálánin og olli þessar smálánavítahringskeðju á sínum tíma. Þetta eru þó vissulega óhagstæð lán.
@ArniMagnusarafi@Sverrirhelga95 Það er frekar hressilegt ÁHK. En er þetta ekki sama Aur lánið og var byrjað að bjóða upp á þegar Nova var með þetta árið 2017? https://t.co/XSpo2pe2hL
@Sverrirhelga95@ArniMagnusarafi Er þetta smálán? Aur er í eigu Kviku en orðið smálán er almennt ekki notað um lán sem veitt eru í bankakerfinu. Eru ekki hinir bankarnir með skammtímalán líka, bæði yfirdrátt og svo einhvers konar sjálfsafgreiðslu lán í heimabankanum?
@tumi_tigur Vesturgata er með þjónustuíbúðir fyrir aldraða en þar eru líka íbúðir í eigu Félagsbústaða, eða seinast þegar ég vissi amk. Skúlagata var byggð af félagi eldri borgara og voru íbúðirnar ætlaðar félagsmönnum.
@StefnirK@einasig Það er líka talað um að það séu hreinlega færri að eignast mörg börn. Margir sem láta gott heita eftir 1-2 og ná þar með ekki að dekka þann hóp sem kýs að eignast ekki börn.
Samt grínlaust þá er þetta búin að vera umræða í þó nokkur ár - að snjallsímar minnki áhuga á barneignum
@einasig@StefnirK Er ekki kenningin að snjallsímar hafi minnkað áhuga fólks á kynlífi? Þú ert með tölvu (snjallsíma) við hendina hvar og hvenær sem er og getur gripið í þegar þig vantar dópamínboozt, þar með minni kynlöngun og þar með færri börn.
@NordicMasc Gengið sem lögreglan neitar að sé til? Ekki að draga úr því að það er alvarlegt að fullorðnir karlmenn séu að reyna að misnota ungar og varnarlausar stúlkur, en hvað bendir til að um skipulagða starfsemi sé að ræða?
https://t.co/DtZoE0UXCc
@daenerystar1995 @Oskrd777H@Gerti1122 Þetta er spurning hvort fílarnir séu fleiri en einn. Ég er með barn í árgangi þar sem allir tala íslensku, en margir hafa alist upp að hluta í ensku málumhverfi youtube, tiktok, netflix og fleira. Þetta samhliða minni lestri hefur áhrif á orðaforða og málvitund.
@Oskrd777H@Gerti1122 Ég held að það gæti verið algilt óháð innflytjendum, þ.e. með einkunnir. Slegið hefur verulega af kröfum til íslenskukunnáttu og mat er mjög huglætt en ekki byggt á hlutlægum þáttum eins og hversu margar villur eru í texta. Sé líka menntaskólakrakka sem tala ísl-ensku í ritmáli.
@Stefan_Mani_ Ekki meira leyndarmál en svo að þetta var á fjárhagsáætlun vegna menntaráðs í janúar á þessu ári. Fór fyrir menntaráð og var þar samþykkt í kjölfar kynningar þar sem eftirfarandi glæru var að finna. Fundargerð menntaráðs fór svo bæði fyrir bæjarráð og bæjarstjórn athugasemdalaust