S4: Í rannsókn sem ég gerði fyrir nokkrum árum kom í ljós að innan grunnskóla á Norðurlandi virtist vera einhvers konar kerfi, formlegt eða óformlegt, (sennilega óformlegt) sem byggðist á því að miðla uppl. og styðja kennara til að koma til móts við nemendahópa. #menntaspjall
Q4 Hvernig er hægt að efla jafningjafræðslu og félagastuðning innan hvers skóla til að styrkja kennara í að koma til móts við fjölbreyttar þarfir nemenda? #menntaspjall#samspil2018
@AlfhildurL já það er nefnilega málið við erum öll sérkennarar og þess vegna þurfum við að vinna saman, finna lausnir til að koma til móts við nemendur.
Q3 Hvers konar starfsþróun telur þú að þurfi til að auka færni kennara til að takast á við ólíkar þarfir? Hvernig er hægt að skapa aðstæður (byggja upp kerfi) innan skóla sem styður við starfsþróun og eflir kennara í starfi? #menntaspjall#samspil2018
S2 Starfsþróun getur verið hvort heldur formleg (t.d. nám, ráðstefna og/eða námskeið) eða óformleg sem fer fram í gegnum samtal, samstarf og/eða lestur svo einhver dæmi séu tekin. Starfsþróun er hægt að skilgreina í víðu samhengi. #menntaspjall#samspil2018
S2 Starfsþróun getur verið hvort heldur formleg (t.d. nám, ráðstefna og/eða námskeið) eða óformleg sem fer fram í gegnum samtal, samstarf og/eða lestur svo einhver dæmi séu tekin.
Q1 Hvaða leiðir hafa verið opnar kennurum til að fræðast um hvað menntun fyrir alla er og geta eflt sig sem kennara í að sinna þessum þætti? #menntaspjall#samspil2018