500 manns fara á viðburði en faðir ófædda barnsins míns fær ekki að koma með inn til ljósmóður til að heyra stöðuna, hvort það yfirleitt heyrist hjartsláttur frá barninu hans eða ræða fæðinguna. Á að bíða fyrir utan. Skiptir hlutverk feðra gjörsamlega engu máli? Er þetta grín?
Ég sagði margoft nei og fór beint á lögreglustöðina. Daginn eftir hringdi konan hans í mig og sagði mér að segja engum frá því hann ætti barn og von á öðru. #metoo
Ég held að guðfræðideildin hafi fengið ranga dagsetningu um prófatíð... Ég er allavega í prófum á undan öllum öðrum sem er vesen því ég kann ekki að læra ein🤧😖
Í matsalnum í Krambúðinni á Búðardal má finna hrútasæði í hitabrúsum. Þeir eru ýmist merktir nöfnum (sennilega bænda) eða bæjum sveitarinnar.
Það var víst líka þarna fyrir 2. vikum (ég er þó ekki viss um að um sama kassann sé að ræða)
Mig vantar útskýringu?
Ókey ég og vinir mínir erum að pönkast í að vekja athygli skólastjórans á því hvað þetta er óviðeigandi. Hvet aðra til að gera slíkt hið sama og vona að þetta hafi einhver áhrif.
Ég mun þurfa að mæta klukkan 8 í skólann þri-fös alla næstu önn! 😭Núna reyni ég að ákveða hvort ég eigi að umbreytast í A-manneskju eða C-manneskju (fara að sofa eftir skóla)... C-manneskja er allavega vænlegra til árangurs 🥴
Ég er vön því að þurfa að sannfæra lækna um að það sé eitthvað að mér til þess að fá hjálp. Núna þegar læknirinn virðist raunverulega hafa áhuga á meinum mínum og reynir að finna rót vandans er ég sannfærð um að ég sé að fara að deyja :)
@BryndisER Hahahaha ángríns! Þetta er samt vinnan þeirra og mér finnst að það eigi að vanda sig betur... Pirrar mig svo því ég er að reyna að lesa fleiri bækur til þess að verða betri í íslensku.
Er ég hræsnari ef ég hætti að lesa íslenskar bækur/fréttir þegar það koma stafsetningavillur, innsláttarvillur eða málvillur en geri slíkar villur sjálf? Mér finnst eins og þetta ætti að vera betur yfirfarið...
Staðan er sú að ég er ánægð að vera veik núna en ekki þegar skólinn er byrjaður. Hélt ég myndi aldrei komast á þennan stað en það er geggjað að vera að læra eitthvað sem manni finnst skemmtilegt🤪
Búin að vera á næturvöktum alla helgina og hafði hugsað mér að skrifa ritgerð fyrir skólann... Náði bara 500 orðum á þessum 38klst en skoðaði allavega bókstaflega ALLT sem birtist á samfélagsmiðlum🤠
Líf mitt í hnotskurn, er ekki búin að eiga “heima” neinsstaðar síðan mamma flutti fyrir ári síðan og mesta vesenið við það er að vita ekki hvert ég eigi að láta senda pakkana mína!
Með eftirfarandi valmöguleika fyrir framan mig:
A. Er hluturinn sem þú þarft að klára
B. Er hluturinn sem þig langar að vera að gera
Vel ég nær undantekningarlaust:
C. Hanga í símanum og fresta A en geta samt ekki valið B því það útilokar að ég geri A
Samsæriskenning- það voru í raun ekki lausir tímar en þau vissu af flutningunum og ákváðu því að bjóða mér tíma.
Afhverju? Þau vilja ekki að þegar ég verð orðin reykjavíkurmær með háskólamenntun kvarti ég yfir þessu ömurlega kerfi😉
Var í tæplega 2 ár á biðlista hjá sálfræðingi og í 1 ár til að komast í hálskirtlatöku fyrir vestan.
Klukkutíma eftir að ég lagði af stað til að flytja til Reykjavíkur var mér boðið að koma í hálskirtatöku.
Í gær þremur vikum seinna boðið sálfræðitími...