D12 í #12dagatwitter markmið mitt fyrir næsta ár bæði í vinnunni og heima er að vera meira í núinu, taka eftir litlu hlutunum sem annars færu framhjá mér, stunda meira jóga & upplifa lífið með litlu rófunni minni 👶🧘♀️ #menntaspjall
D11 í #12dagatwitter hlýjan sem maður fær frá börnunum á hverjum degi, traustið frá foreldrunum og náið samstarf starfsfólks í leikskólanum er dýrmætast 🌟 Leikskólahjartað slær svo fast ���� #menntaspjall
#12dagatwitter Samskipti við barnahóp fékk mig til endurhugsa dagskipulagið. Börnin voru í frjálsum leik. Ég bið þau um að ganga frá. En við erum EKKERT búin að leika😭Börn sjá leik í allt öðru ljósi. Þau voru bara búin að undirbúa leikinn, byggja, ákveða hlutverk en ekki leika.
D9 #12dagatwitter ég er stolt af Floorbooks vinnu barnanna á Kirkjugerði. Floorbooks er samvinnunámsbók þar sem forvitni og leikur barnanna leiðir ferðina. Börnin fá frjálsar hendur við að skapa,skrá og ígrunda ákveðið viðfangsefni í einu👏 https://t.co/d7sNQpHRbf
#menntaspjall
D6 í #12dagatwitter fyrir leikskólakennara mæli ég mikið með bókinni Siggi og Sigrún slaka á. Snilld að lesa fyrir börnin sem eru hætt að sofna í hvíld en liggja samt og slaka á �� smá stund 🥰 #menntaspjall #leikskólinnokkar
D4 í #12dagatwitter Í leikskólanum nota ég Karellen daglega fyrir skráningar og samskipti við foreldra. Annars er húmor og gleði allsráðandi allan daginn af því að prumpu brandarar hætta aldrei að vera fyndnir, sérstaklega ekki hjá krílunum 😂🧸 #menntaspjall
D2 í #12dagatwitter ég dýrka og dái Google umhverfið. Undanfarið hef ég mikið notað Google Sites í náminu og sem lokaverkefni bjó ég til rafrænan jóga og núvitundar gagnabanka🧘♀️ Mæli með að fikra sig áfram. Auðvelt og aðgengilegt viðmót! #menntaspjall
https://t.co/8KjQ1yrbK5
#Dagur1 í #12dagatwitter Hildur heiti ég, nýútskrifuð úr B.Ed námi í kennarafræði við HA. Í fæðingarorlofi en tek við deildarstjórn um áramót í leikskólanum Kirkjugerði, Vestmannaeyjum. Hef mikinn áhuga á jóga og núvitund í skólastarfi og frjálsum leik barna #menntaspjall
#Dagur9&12 í #12dagaTwitter Markmið 2021 er að klára að skrifa B.Ed. ritgerð við HA áður en frumburðurinn fæðist í febrúar & lesa meira til gamans á árinu (ef ég verð ekki buguð ný mamma) 👶📚
#menntaspjall
#Dagur10 í #12dagaTwitter ég mæli með bókinni "Má ég vera memm?" eftir Hörpu Lúthersdóttur. Hef lesið hana með 3.-5 ára börnum við góðar undirtektir. Opnar augu barnanna um einelti, kvíða og vináttu🙏 #menntaspjall#Dagur9 er seinn í partýið! 😅
#Dagur8 í #12dagaTwitter í kjölfar Covid hef ég lært hversu aðlögunarhæf við erum sem samfélag. Við getum lært inn á nýtt "norm" þó að það sé krefjandi. Við erum opnari að prófa nýja hluti t.d. hvað varðar tækni 🙌 #menntaspjall
#Dagur7 í #12dagaTwitter ég vil hrósa öllum leikskólakennurum fyrir óeigingjarnt starf. Starfið er ekki alltaf metið að verðleikum í samfélaginu því miður en ávallt hafa kennarar á "gólfinu" fært samfélaginu vel undirbúna einstaklinga 🥳❤ Áfram leikskólastigið! #menntaspjall