Þetta væri náttúrulega andskoti flottur olnbogi í UFC eða einhverju álíka en stórfurðuleg hegðun inni á fótboltavelli…
@OrriRafn hvað finnst okkur um svona gegn Stólastelpum? Stöndum við landsbyggðarmenn ekki saman gegn ofbeldi í íþróttum?
Flutti til Spánar með aðeins 23kg ferðatösku fyrir tæpum 4 vikum síðan. Viðurkenni að ég var full bjartsýn. Mamma nennir mér lítið (Takið eftir thumbs down)
Katrín Tanja er í Atvinnumönnunum okkar í kvöld 19:40 á Stöð 2. Sturlaður þáttur! Fékk leyfi hjá henni að henda í leik. RT og þú gætir fengið að taka alvöru Crossfitæfingu með henni næst þegar hún dettur á klakann!
Mömmur fyrir nokkrum árum: ekki setja neitt á netið um að við séum í fríi, með því ertu bara að bjóða innbrotsþjófum í heimsókn!!!!!
Mömmur í dag: dásamlegur tími hérna á Tene með fjöllunni, ein vika búin og tvær eftir - LÍFIÐ ER LJÚFT :o)
Að eðlisfari er ég algjör B-týpa. Elska að fara seint að sofa og vakna seint. Samt er eitthvað svo frábært við helgarmorgna þegar maður vaknar snemma og fær sér rjúkandi heitt kaffi í engu stressi og les um djammviskubit annarra frá kvöldinu áður.
Þegar þú býrð ekki lengur hjá mömmu og pabba og þú ert allt í einu a�� eyða peningunum þínum í fáránlega hluti sem voru svo sjálfsagðir t.d. álpappír, tuskur og viskustykki, hvítlaukspressa, salt, klósettbursta ofl
Í dag kemur sólin upp kl. 10:22 í Rvk og sest kl. 16:59. Eftir slétta viku kemur hún upp kl. 10:00. Föstudaginn 16. febrúar sest hún ekki fyrr en kl. 18 og föstudaginn 23. febrúar kemur hún upp fyrir kl. 9.
Tindastóll til hamingju 🏆 Gott sjónvarp. Hef aldrei séð annan eins samfögnuð hjá neinu liði, allir áhorfendur eru með á myndum, bikarinn upp í stúku og helmingurinn af fólkinu grætur gleðitárum. Það var heilt bæjarfélag sem sótti þennan titil.