Skipulagsstofnun sinnir stefnumótun, stjórnsýslu og leiðbeiningum um skipulag og framkvæmdir með sjálfbæra nýtingu auðlinda og vandaða byggð að leiðarljósi.
Skipulagsstofnun hefur nú sameinast í Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun. Þessari síðu verður lokað, en við hvetjum fylgjendur til þess að fylgja HMS á Facebook og Instagram. https://t.co/TcLwvphEFR
Torgið, fréttabréf Skipulagsstofnunar, er komið út. Efnismeira og fjölbreyttara en áður. Tilvalið lesefni í páskafríinu fyrir jafnt fagfólk sem annað áhugafólk um skipulagsmál.
https://t.co/2YqxXBo0b8
Bendum á þessa útgáfu á vef Skipulagsstofnunar. Mannlíf, byggð og bæjarrými: leiðbeiningar um sjálfbært skipulag og vistvænar samgöngur í þéttbýli.
Þetta rit ætti að gagnast öllum sem fást við og hafa áhuga á skipulagi borga og bæja.
https://t.co/adyap6Z8gp
Skipulagsdagurinn 2023 verður þann 19. október næstkomandi. Að þessu sinni verður Skipulagsdagurinn í Grósku – hugmyndahúsi við Bjargargötu 1 í Reykjavík og stendur hann yfir frá 9 að morgni til 16 síðdegis. Við hvetjum ykkur til að taka daginn frá!
Í ár verður Umhverfismatsdagurinn helgaður þætti loftslagsbreytinga þegar kemur að umhverfismati og farið yfir sviðið þegar kemur að framkvæmdum og áætlunum á Íslandi með tilliti til loftslagsáhrifa.
https://t.co/03zsqTsdm8
Skipulagsgáttin er komin í loftið. Mikið fagnaðarefni og stór dagur í skipulagssögu Íslands. Auðveldar fagfólki störf sín og bylting fyrir almenning sem hefur áhuga á skipulagsmálum og langar að hafa áhrif á þróun umhverfisins.
https://t.co/7AMiHGlS1T
Nú má nálgast stafrænt aðalskipulag 50 sveitarfélaga á nýrri aðalskipulagssjá sem Skipulagsstofnun tók í notkun í nóvember 2022. Bylting í aðgengi að upplýsingum um skipulagsmál!
https://t.co/mLgCIvVoZv
Torgið, fréttabréf Skipulagsstofnunar, er komið út. Þar er hægt að lesa um leiðbeiningar fyrir skipulag borgar-og/eða bæjarrýmis, um nýja stúdentagarða á Flateyri og margt fleira.
https://t.co/eq6vk0y0d9
Skipulagsdagurinn, árleg ráðstefna um skipulagsmál, verður haldinn á Grand Hótel, þann 17. nóvember nk. Við hvetjum öll til að mæta. Skráning er hér: https://t.co/2ZfuQbyFBy
Innifalið í skráningargjaldi eru kaffiveitingar, hádegisverður og léttar veitingar að ráðstefnu lokinni.
Evrópsk Samgönguvika er haldin 16. – 22. september ár hvert. Markmið vikunnar er að kynna íbúum í þéttbýli samgöngumáta sem allt í senn eru vistvænir, hagkvæmir og bæta heilsu fólks um leið og þeir hafa jákvæð áhrif á umhverfi og andrúmsloft.
Á þessari stundu fer fram ráðstefnan Sveitarfélög, áhrif loftslagsbreytinga og aðlögunaraðgerðir. Þar mun Ólafur Árnason, forstjóri Skipulagsstofnunar, ræða um loftslagsbreytingar í samhengi við skipulagsmál. Fylgjast má með ráðstefnunni í beinu streymi👇
https://t.co/uAXDVIp90A
Innviðaráðherra hefur sett Ólaf Árnason, forstöðumann nýsköpunar og þróunar hjá Skipulagsstofnun, í embætti forstjóra stofnunarinnar til 31. desember 2022. Ásdís Hlökk Theodórsdóttir kveður, eftir að hafa sinnt embætti forstjóra síðan 2013.
Hugmyndir um athafnasvæði í Sogamýri/Skeifunni eru frá 1958. Árið 1964 var uppdráttur þáv. skipulagsstj., Aðalsteins Richter, staðfestur. Fyrst byggt f. Iðngarða e. frumdrögum Sigvalda Thordarsonar en þróaðist í verslunarsvæði uppúr 1970 er bygging nýs miðbæjar í Kringlu tafðist.
Torgið - fréttabréf Skipulagsstofnunar er komið út.
Strandsvæðisskipulag
Skipulagsgáttin
Birtuskilyrði á uppbyggingarreitum
Skógarböðin í Eyjafirði
Áhugafólk um skipulagsmál, gjöriði svo vel.
https://t.co/dA6p4SB9aq
Akureyrarbær gerði breytingu á aðalskipulagi í vetur vegna nýs stígakerfis. Hér má sjá afraksturinn, eða leiðbeinandi legu stofn- og tengistíga. Skipulagssvið bæjarins kemur þar með til móts við mikinn uppgang (raf)hjólreiða í bænum að undanförnu. Eins og sjá má hjá @Totaodds !
Nú stendur yfir kynning á tillögum að strandsvæðisskipulagi Vestfjarða og Austfjarða. Um er að ræða fyrstu tillögur að skipulagi fjarða og flóa við strendur Íslands og er hér brotið í blað í hundrað ára skipulagssögu landsins.
https://t.co/ADmOzLZztQ