Ég er farin að ókyrrast aðeins vegna ESB kosninga í enda Ágúst.
Fékk þessa tilfinningu í gær og það er vegna þess fólks sem er mest að heyrast í núna sem nei sinnar.
Það eru alveg miðalda svartasta íhald af vinstri hluta stjórnmálanna.
Gamlir VG og þaðan að verra lið, lið eins og Jón Bjarna og fleiri þannig afturhalds haugar.
Það sem vakti mig er það sem bróðir minn sagði við mig
,,hvenær fórst þú að vera með íhalds komma liði úr svörtustu forneskju, lið sem var á móti EFTA, NATO og ESS. Það mætti halda að draugar Svarar Gest og fleiri þannig leiki lausum hala hérna, þú sjálfur hægri maðurinn. Þokkalegur félagsskapur.”
Er ekki kominn tími að fara segja upp nokkrum samningum sem Ísland hefur gert, t.d Ets um kolefnisgjöld, flóttamanna samningi SÞ og jafnvel einhverjum fleirum.
Frú kjálkabítur er farinn að sýna að það á blekkja ungt fólk með fagurgala um lægri vexti og minni matarkostnað til að fá það kjósa ESB ruglið.
Svo að það geti eignast húsnæði ef ekki farið í ESB en það er vandamál sem ESB leysir ekki enda byggir það ekki húsnæði.
Flokkur fólksins er samansettur af þessu fólki. Það er stutt í að þar verði jafnvel fólksflótti í aðra flokka þar sem þingmenn þessa flokks vita að dæmið er búið hjá þeim og Inga er að fara hætta fljótlega.
Hvert fer liðið
1. Ásthildur Lóa-Framsókn
2. Eyjólfur Ármannsson-Miðflokkur
3. Inga Sæland- hættir
4. Guðmundur Ingi-hættur, óháður, Vinstrið
5. Jónína Björk-??
6. Kolbrún Áslaugar-Sjálfstæðis eða Miðflokk
7. Lilja Rafney-Vinstrið
8. Ragnar Þór-Samfó eða Vinstrið
9. Sigurður Helgi-Samfó
10. Sigurjón-Miðflokkur
https://t.co/LWgud6g1M2
Ég er í Sjálfstæðisflokknum og bý i einu sterkasta vígi hans, Garðabæ.
Ég var á móti þessu samstarfi í Reykjavík og það er aðallega vegna óbeitar minnar á viðreisn.
Hefði viljað að Miðflokknum hefði verið gefið tækifæri að sanna sig og sýna hvort þau séu stjórntæk.
Hefði verið góð prófraun fyrir hugsanlegt samstarf í ríkisstjórn.
Það kemur samt ekki til greina að yfirgefa Sjálfstæðisflokkinn þar sem sá flokkur samræmis mínum skoðunum í meginatriðum, t.d varðandi eignarréttinn, viðskiptafrelsi og nokkur önnur atriði.
Auðvitað er ég ekki sáttur við allt hjá Sjálfstæðisflokknum en það er algjör villa að yfirgefa skipið.
Það er einungis val að halda áfram og reyna hafa áhrif á stefnu flokksins og vinna að því t.d með því að vera virkur í starfi hans.
Þá er hún byrjuð að bulla áfram og ljúga um atkvæðagreiðslu vegna ESB.
Það þarf að hætta hlusta á ruglið í henni og hvernig hún talar niður til þjóðarinnar.
Dries has just been convicted again: This time for speaking the truth about the disastrous consequences of mass migration.
The most insane part is that the Belgian court even admitted Dries spoke the truth, as what he said was factual, but deems it a crime because it could incite hatred. Let that sink in.
They’re criminalizing the truth and they’re using Dries to set an example.
Let’s come together to help him. Dries is a young father, a brave patriot and the Belgian establishment has been trying to destroy him for years. He’s taken so many hits, he really deserves our help.
@itgeorgs Við erum miklu fleiri en þú heldur hér á landi.
Allavega í kringum mig en kannski er það bara mín þrönga forréttinda veröld.
Af sex systkinum erum við öll yfir þetta en fædd af frekar efna litlum foreldrum.
Svo nokkrir kunningjar líka.
Ég hef aðeins verið að velta fyrir mér stöðunni í Reykjavík.
Sjálfstæðisflokkurinn er í vondri stöðu.
Treysta ekki alveg Miðflokkunum vegna fólks þar á listanum.
Vilja alveg örugglega ekki gefa viðreisn súrefni með því að komast til valda auk þess sem viðreisn myndi hafa mikið neitunarvald í þannig samsettri borgarstjórn ásamt Framsókn.
Það var samt kosið til hægri og meirihluti kjósenda Sjálfstæðisflokksins vilja alls ekki leiða viðreisn til valda.
Það er því úr vondu að ráða, það er mín persónulega skoðun að leiða viðreisn til valda sé mjög slæmur kostur þar sem það myndi líklega verða til þess að Miðflokkurinn yrði en stærri og það á kostnað Sjálfstæðisflokksins.
Því verður að reyna mynda meirihluta með Miðflokknum ásamt Framsókn og láta á það reyna hvort þeir séu stjórntækir.
Það kemur svo í ljós hvort þeir geti verið í meirihluta en geti þeir það ekki þá er hægt að mynda nýjan meirihluta.
Það yrði líka próf á það hvort hægt verði að mynda starfhæfa ríkisstjórn með þeim í framtíðinni.
Það er Miðflokksins að sanna að þeir geti stjórnað og verið í meirihluta.