Silja Sóley í Sósíalistaflokknum segir frá áskorunum og lærdómi í Mannlífsviðtali. „Ég held að þessi stöðugi samanburður sé mikið mein í samfélaginu og að það leiði til þess að við horfum of mikið inn á við.“
https://t.co/wjGpLohjOE
„Ertu ekki í brjóstahaldara hjá Gísla Marteini?“ spyr einn með bíl í prófílmynd. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir hefur nú svarað honum og öðrum lyklaborðsriddurum.
https://t.co/ySy78ifxZM
Heiðrún Emilía Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu, kemur fram í viðtalaröð Mannlífs við stjórnendur. Hún leggur áherslu á að vera hreinskiptin í samskiptum og að treysta samstarfsfólki í þeirra verkefnum.
https://t.co/v5XBcmM7N5
„Ég elska að gefa af mér og láta gott af mér leiða og vera til staðar fyrir fólk,“ segir Margrét Löf meðal annars í sjálfslýsingu í fyrsta viðtalinu eftir dóminn yfir henni fyrir að bana föður sínum.
https://t.co/pGWD0PrCDL
Þórunn Valdimarsdóttir rithöfundur ræðir á hispurslausan hátt um lífið, dauðann, einveruna og björtu hliðarnar. „Ég ýtti sorginni út í Faxaflóa,“ segir hún í Mannlífsviðtali.
https://t.co/J5obrmjEBQ
Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, faðmar að sér fanga á Litla-Hrauni og kallar þá kærleiksbangsa. Sjálf kærði hún aldrei manninn sem braut á henni í æsku. https://t.co/PTOEQlT1Ag
Píratar vinna að sáttartillögu sem sögð er fela í sér umdeildar breytingar á framkvæmdastjórn flokksins. Ágreiningur blossaði upp á milli fráfarandi og nýkjörinnar stjórnar í kjölfar kosningar á nýrri framkvæmdastjórn.
https://t.co/yfEKAsZQhM
Meirihlutinn í skipulagsnefnd Skagafjarðar klofnaði í afstöðu sinni til tillögu VG og óháðra um að lokka lágvöruverðsverslun inn á nýtt atvinnu- og þjónustusvæði á Sauðárkróki. Engin lágvöruverðsverslun er á Norðurlandi vestra. https://t.co/bRSF961vtl
Mikið hefur verið rætt og ritað um þær efnahagslegu afleiðingar sem loftslagsbreytingar hafa í för með sér erlendis. Varað er við því að hlýnun jarðar muni hafa töluverð neikvæð áhrif á heildarframboð á ýmsum vörum https://t.co/16CkSTnlMI
Þýski loftslagsaktívistinn Tobias März segir samfélagið þurfa að þvinga fram aðgerðir gegn loftslagsbreytingum áður en það verður of seint. Aktívistar hafa fengið fangelsisdóma fyrir aðgerðir sínar í Þýskalandi undanfarið. https://t.co/S4ydfl2XTJ
„Íslensk stjórnvöld eiga að mótmæla formlega námufyrirætlunum norskra aðila og norska ríkisins sem gætu raungerst á komandi árum,“ skrifar jarðvísindamaðurinn Ari Trausti Guðmundsson. https://t.co/TmUAJA5WFQ
Indriði H. Þorláksson segir skýrslu Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi marklausa í heild sinni vegna veikleika við gerð hennar. Við lestur hennar verði fljótt ljóst að hún byggist á úreltum kennisetningum https://t.co/7FdN7y03JP
Skattkerfisbreytingar sem tengjast akstri ökutækja og eldsneyti munu auka tekjur ríkissjóðs um rúmlega 10 milljarða á milli ára, samkvæmt fjárlagafrumvarpi komandi árs. https://t.co/EYeGtT3kp0
Víðir Reynisson hjá Almannavörnum segir miklar og kostnaðarsamar framkvæmdir eftir til að efla öryggi landsmanna þegar hættan eykst vegna loftslagsbreytinga. https://t.co/qPXI3FWraG