Vestmannaeyjar strengur 3 (VM3) er kominn aftur í rekstur eftir bilun í lok janúar og öllum skerðingum er hér með aflétt í Vestmannaeyjum. Það er ánægjulegt að tilkynna að þessu stóra verkefni sé lokið og viljum við þakka öllum sem að viðgerðinni komu fyrir samstarfið.
Vegna vinnu í tengivirkinu Varmahlíð leysti Sauðárkrókslína 2 út og áður var Sauðárkrókslína 1 úr rekstri vegna sömu vinnu.
Vegna þessa orsakaðist rafmagnsleysi á Sauðárkrók og verið er að vinna að spennusetningu.
Myndarlegur úrkomubakki stefnir á Norðanlandið og hætt er við slydduísingu á línur á láglendi frá Eyjafirði og austur í Öxarfjörð. Við erum sérstaklega að horfa á Dalvíkurlínu 1, Húsavíkurlínu 1 og Kópaskerslínu1.
Minnum á Landsnetsappið þar sem upplýsingar um truflanir birtast.
Í bilun eins og kom upp í morgun hjá @RARIK á Reyðarfirði leggjast allir á eitt við að koma rafmagni á aftur. Okkar fólk á austurlandi vinnur nú með Rarik að því að finna lausn og skoða hvort hægt sé að koma varafli á staðinn. #samvinna
Í 50 ár hefur byggðalínan okkar fært landsmönnum rafmagn til að tendra jólaljósin,elda hátíðarmatinn undir ljúfum jólatónum og hlusta á jólaklukkurnar hringja jólin inn. Um leið og við þökkum þér fyrir góð samskipti á árinu óskum við þér bjartrar jólahátíðar og spennandi nýs árs.
Við erum en að bíða eftir afgreiðslu Sveitarfélagsins Voga vegna framkvæmdaleyfis á Suðurnesjalínu 2 - á meðan tapast fjármagn, tími og tækifæri.
#suðurnesjalína2
Núna rétt áðan rofnaði Byggðalínuhringurinn og við erum með nokkrar vélar á Þjórsá- og túnasvæðinu úti. Erum byrjuð að byggja kerfið upp aftur en ekkert rafmagnsleysi er í augnablikinu.
👉 Minnum á Landsnetsappið þar sem allar tilkynningar birtast.