Marcy frá USA, Matji frá Serbíu eru snillingar í leikjahönnun, MC frá Japan vinnur með myndir og ég finn hljóð fyrir leikinn, skrifa greinagerð af hverju við erum með þessa hugmynd. Á morgun á að prófa leikinn í two player og þá er námsk. búið #menntaspjall#millonollo
Fyrsta ráðstefnan í dag. Ég er komin í hóp með forriturum og leikjahönnuðum að búa til tölvuleik. Gæti verið mamma þeirra allra en aldur er afstæður. Ég fer yfir reglur og kennslufræðilega þáttinn í staðinn. Afurð á föstudaginn eða prótótýpa af leiknum #menntaspjall#millonollo
Spennandi.
Er að fara á þessa ráðstefnu í júní í Kaupmannahöfn.
NASG – Nordic Alliance for Sustainability in Gaming https://t.co/aEsKyYo0mc
#menntaspjall#millonollo
@bjorngunnlaugs Þegar ég var að vinna í FB búandi í Nolló, var betra fyrir mig að labba en að taka strætó í öllum veðrum. Hefði þurft 4 strætó til þess að komast frá A-Ö. Geri ráð fyrir að þú hafir BARA þurft að taka tvo.......
D9… Verkefni sem ég ætla að deila kalla ég orð dagsins og er við hæfi í viku íslenskunnar… orð dagsins er oftar en ekki valið úr orðalista Perluvinafélagsins (efni í aðra færslu) en þetta eru jákvæð lýsingarorð og birtast á skjá fyrir framan skólasafnið á hverjum degi…👇
D10 #12dagatwitter#menntaspjall
Ég hef prófað bekkjarkennslu og teymiskennslu og ég held ég snúi aldrei aftur í bekkjarkennslu. Að vera hluti af teymi er geggjað.
@Ljosalfur Þessi síða er náttúrulega dásamleg. Ég er með Rick Astley hringitón og krakkarnir ásaka mig að vera að rickrolla þau allan daginn þegar hann hringir.
D3 Síminn hefur svo oft hjálpað mér í kennslustund sem kennslutæki þannig að ég er hlynnt. Hins vegar er ég á þeirri skoðun að kennarinn stýrir notkun tækis og hvernig á að nota það á skólatíma.
#12dagaTwitter#menntaspjall#millonollo
Ragnheiður heiti ég og er kennari á miðstigi í Norðlingaskóla. Kenni ensku, snillismiðju og er í innleiðingu spjaldtölva á miðstiginu #12dagatwitter#menntaspjall#millonollo