Það væri nokkuð gott twist ef það væru Samtökin 78 sem væru úti á nóttunni að skera niður regnbogafána. Fá góða samstöðu út á það og selja fleiri fána 😁
Besti minn (5 ára) sá að mamma hans var þreytt og spurði hvað ég vildi fá að borða. Bað svo pabba sinn að hjálpa sér að spæla handa mér egg, breiddi yfir mig sængina sína og kom með vatnsglas og sagði mér að slaka á meðan hann og pabbi elduðu fyrir mig 🥺❤️
Það eru tvær árstíðir á Íslandi. Rigning og vesældómur eða Eymd og volæði. Haustið kom óvenju snemma þetta árið. Það var 29. maí og hver haustlægðin lagðist yfir landið á fætur annarri.
Þetta var í fyrsta skipti í mannkynssögunni sem heil þjóð lagðist niður, gafst upp og dó.
Merki um að ég drekki of mikið kaffi?
Sonur: Mamma viltu smakka mjólkina mína?
Ég: Nei takk ástin mín
Sonur: En þú hefur aldrei smakkað mjólk án kaffi!
.... 😐
Oft er fólk kallað "viðkvæmt blóm" í neikvæðri merkingu. En eru það ekki einmitt viðkvæmu blómin sem við reynum hvað mest að rækta í kringum okkur? Ef við erum tilbúin að leggja á okkur vinnu til að þau fái að blómstra, þá verða þau oft fallegust blóma.
Fimm ára sonur minn er frekar ósáttur yfir því að þurfa að hlusta á svona mikið af öðrum lögum en Cha cha cha. Hann vill bara meira Cha cha cha. #12stig