Í Pollýönnu skapi hugsaði ég í morgun, ,,að minnsta kosti hefur ekki komið lúsapóstur lengi!” Og hvað var að koma í hús? Helvítis lúsapóstur. HVAÐ NÆST? HEIMSENDIR??
Að fylgjast með https://t.co/ny4xUQB9Ib minnir óneitanlega á kosningavöku. ,,Já... nú erum við að fá nýjustu tölur frá norðurlandi eystra en þar hafa 34 atkvæði verið talin.”
Skömmu áður hafði ég gengið inn, neð sama hugarfar en ekki eins útpælt. Ekki með hanska. Þurfti að velja mér almúgakerru en passaði mig að stýra henni með úlpuermunum. Kreisti svo þrjátíu avókadó áður en ég valdi tvö. Amatör.
Dáðist að öldruðum manni í hverfisbúðinni sem var búinn að plana allt. Mættur seint um kvöld. Stóð lengi og valdi með augunum áður en hann seildist hanskaklæddur í vöru sem hann síðan raðaði í snjáða barnakerru sem hann kom með úr geymslunni. Meistari.
,,Hann er góður kall,” sagði þriggja ára dóttir mín í uppörvandi tón eftir að Stefán braut kristalsglasið. Hvort á ég að senda hana í lagadeildina eða félagsráðgjöf eftir 17 ár? #12stig
Eftir einhverja erfiðustu fluglendingu sem ég hef upplifað í lífi mínu fékk ég annað áfall skömmu síðar þegar skoski leigubílstjórinn settist í farþegasætið og keyrði af stað. Ég verð orðin að taugahrúgu þegar ég kem heim úr þessari slökunarferð.
Var að útskýra konseptið mic drop fyrir rúmlega sjötugri móður minni. Hún sagði mér að á hennar yngri árum hefði verið meira um að fólk tæki gítarsóló og endaði svo á að brjóta gítarinn með tilþrifum.
Gamla verður alltaf að toppa.
Einu sinni átti ég til að pirra mig á háværum nágrönnum. Pólsku pípararnir fyrir ofan mig eru hinsvegar með svo frábæran tónlistarsmekk, að ég er nú líklegri til að banka til að fá þá til að hækka heldur en að lækka, eða skamma þá fyrir að skipta um lag.
#nágrannar
Hressandi að komast að því á leiðinni út, að tónlistin í sturtuklefanum í Laugum var allan tímann spotify í símanum í úlpuvasanum mínum í skápnum, sem var greinilega búin að vera gangi í meira en klukkutíma. #töfftýpa
B��rnin mín skola svolítið saman Buddha og Búdda þeim sem fór í bæinn og búð og sat á torginu og var að borða snúð. ,,Er þetta Búddi?”
#foreldratwitter
Foreldrar athugið. Það er óþarfa fyrirhöfn að hafa börnin í bílbelti þessa dagana. ,,Löggan kemur ekkert, þí hún er í sumarfríinu,” skv. 3ja ára dóttur minni. Ég sé að ég hef verk að vinna. #mömmutwitter
Ég hef aðeins verið skugginn af sjálfri mér síðan síðasti svarti doritos pokinn seldist í Iceland. Hef farið að gá á hverjum degi síðan en ekki þorað að spyrja. Hvað er að gerast? #prayforme
Nú vantar mig bara að apple framleiði hleðslubolla sem heldur kaffinu heitu og ég get hringt í með úrinu þegar ég týni honum, og þá er líf mitt fullkomnað.