Rúmlega fertugur fjölskyldufaðir í Breiðholti. Þjóðfræðingur og menningarmiðlari að mennt. Forstöðumaður að atvinnu. Ljúfmenni og mannvinur. Femínisti. Hann/he.
Í gær voru fluttar fréttir af því að yfirvöld hafi vitað í lengri tíma, að pabbi Ríkislögreglustjóra væri að selja ólögleg vopn.
Í dag er allt ræst út í að elta uppi fatlaðan Íraka í hjólastól til þess að henda úr landi.
Við erum ekki einu sinni properly fucked.
Þið haldið kannski að börnin ykkar séu kurteis, en dóttir mín var að enda við að segja takk við mig, eftir að ég stakk upp í hana snuðinu. Hún er eins og hálfs. Og steinsofandi.
@KristrunEmilia Fyrirsjáanlegasta hugmynd ever. Við eigum alltaf að rjúka til og redda öllu sem skóla- og leikskólahluti SFS lendir í veseni með. Þess á milli erum við geymd útí horni. Ég meina, við erum bara að leika við krakkana, það er ekki eins og við séum í alvöru vinnu 🤷♂️
@kristjanari7 Satt. Bríet er sennilega of ung enn til að fíla þetta, það kann að hafa litað upplifun foreldranna eitthvað. Mér fannst þetta bara eitthvað svo dapurlegt allt saman.
Ókei krakkar. Smá real talk hérna, mögulega nokkrum árum of seint samt 🤷♂️ Slakki. Aaaaf hverju er það thing? Skítugt, niðurnítt, fokdýrt og það sem er verst, dýrunum (sem eru 90% kanínur og páfagaukar) líður augljóslega ekki vel. Það í alvöru fauk smá í mig þarna.
Hef í alvöru ekki tölu á hversu oft ég hef slökkt á Top Gun eða sleppt því að horfa á hana vegna þess að meika ekki þegar Goose deyr. Einn mesti harmdauði kvikmyndasögunnar.
Hvar hafa dagar lífs míns lit sínum glatað? Í gær uppgötvaði ég að eitt helsta tilhlökkunarefni tilveru minnar er að bíða eftir mánaðamótum, til að gá hvaða rétti IKEA býður upp á þann mánuðinn…
Landsliðshópur Íslands gegn Dönum í kvöld að lokinni vel heppnaðri æfingu í morgun. Bogdan verður á hliðarlínunni svo Gummi geti einbeitt sér að vinstra horninu. #emruv