Óvissuferðir um óbyggðir með AI, hafa breytt því hvernig ég vinn.
Í mínu verklagi hefur hvert tól afmarkað hlutverk:
- ChatGPT hjálpar mér að vinna hugmyndina og útskýra ferlana.
- Claude sér um forritunina.
- Grok er regluvörðurinn sem fylgist með að verkefnið fari ekki út fyrir verkumfangið.
- Gemini hjálpar með tæknileg brúaratriði, eins og hvernig tólin tala saman í gegnum API.
Ávinningurinn er ekki bara að fá „besta módelið“ í hvert verkefni. Hann felst líka í að aðskilja hugsun, framkvæmd og eftirlit.
Eitt tól fær ekki að skilgreina vandamálið, skrifa lausnina og dæma eigið verk.
Kannski er næsta skref í notkun AI ekki að velja einn sigurvegara. Kannski er það að byggja teymi.
Tæknin hefur ekki bara aukið hraðann. Hún hefur margfaldað freistingarnar.
Áður var kannski ein kona í rauðum kjól sem dró athyglina frá stefnunni. Nú eru þær alls staðar.
Ný tól. Ný færni. Nýjar leiðir sem virðast geta breytt öllu.
Spurningin er ekki lengur hvort þú getir lært eða gert meira. Hún er hvort þú getir haldið stefnu þegar möguleikarnir stökkbreytast hraðar en þú getur metið þá.
Í slíku umhverfi verður fókus ekki bara spurning um aga. Fókus verður kjarnafærni.
Forskotið liggur kannski ekki hjá þeim sem geta nýtt sér flestar nýjungar, heldur þeim sem sjá nógu skýrt hvað skiptir þá máli og láta restina eiga sig.
@siggasvan Áhugavert. Það væri athyglisvert að heyra frá þessum mönnum hvernig "týpu" þeir upplifa þig og hvort það sé samhljómur í þeirra upplifun. Magnað hvað upplifanir geta verið ólíkar, óháð kyni og aldri.