@OrTorfi Það tók náttúrulega alltof langan tíma að svara þessu en hér erum við. Þetta er varnagli með tilliti til reglugerðar frá PFS. Þetta hefur að okkur vitandi aldrei gerst og mun amk ekki gerast að okkar frumkvæði.
Forsala á Innipúkann hefst í Sambandsappinu á fimmtudaginn
Þið sem viljið vera snögg að tryggja ykkur miða en eigið af einhverjum ástæðum eftir að skipta yfir í Sambandið getið heimsótt okkur á Hverfisgötuna, við tökum við á móti ykkur!
@HaraldurKarls@siminn@nova_island@vodafoneis@Hringidan@hringdu Allar þjónustutilkynningar eru birtar á https://t.co/jQ0VmhEY4m og á samfélagsmiðlunum okkar. Ef um eitthvað stórvægilegt er að ræða, sem við höfum blessunarlega verið laus við, notumst við við sms. Alltaf hægt að gera betur í þessum efnum.
Dagana 10. - 17. febrúar eru Gígadagar hjá okkur í Sambandinu. Á meðan þeim stendur er 50% afsláttur af öllum áfyllingum og þeir sem panta símkort á þeim tíma hljóta 60 GB frítt við skráningu. Fáðu frekari upplýsingar um Gígadaga og pantaðu símkort á https://t.co/Iszf2vTL1L
Vegna tæknilegra örðugleika í farsímakerfi geta viðskiptavinir Sambandsins fundið fyrir truflunum á SMS sendingum og símtölum erlendis. Unnið er að viðgerð. Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.