Hvernig datt ég næstum því af hestbaki í fyrsta skiptið í fjögur ár?? Sagan: Yrju, hestinum, brá svo mikið við sitt háværa prump að hún hoppaði upp í loftið skelfingu lostin og prjónaði. Var með Lukku í aukataum og henni brá við það líka. Hef sjaldan hlegið jafn mikið, elsk’anna
Fólk segir að fólk með ADHD er hæfileikaríkt… held að ég persónulega finn alltaf nýja hluti til að hyper-fixatea á og verð góð í þeim hlut og þegar mér leiðist loks þá finn ég bara annan hlut til að hyper-fixatea á. Vítahringur.
Ég skildi það aldrei hvers vegna fólk safnaði frímerkjum. Nú skil ég fullkomlega. Þetta er dópamín á litlum skrautlegum miðum tengt (oft) fallegum hlutum.
Er búin að vera grátandi í nokkra klukkutíma en Ófeigur er búinn að vera að reyna að koma mér í gott skap. Það er svo sannarlega að virka. Lítið á hann. Hann er svo sætur og hann veit það
Ég: “Hversu margir grænkerar helduru að það séu hérna?” @ruriscoler: “Ertu þá að tala um fólk sem að borðar ekki kjöt, eða fólk sem að reykir hass? örugglega sama prósentan sko”
Einn daginn mun einhver klár norðurkjallarabúi opna glugga. Einn daginn mun einhver klár maraþarabúi fjárfesta í viftu. En það mun bara eiga sér stað í mun þróaðra samfélagi.