@atli_vidar Amma lenti í sama. Útrunnið ökuskírteini og vegabréf og hún ekki í neinni þörf til að endurnýja (91 árs þá og hvorki að fara erlendis né keyra meir), með takkasíma sem studdi ekki rafræn skilríki og það var næstum eins og hún væri ekki til í kerfinu!
Dásamlegu börnin.
"Ha, er enginn nýr í dag?" spurði einn 7 ára þegar hann kom í skólann eftir helgina og vottaði fyrir vonbrigðasvip. "Ég ætlaði að taka ofurvel á móti öllum krökkunum frá Grindavík svo þau gætu kannski orðið glöð í smástund".
Sá kynningu á #snjallræði í Helgafellsskóla á #utisonline í fyrra. Í dag er hringekja á yngra stigi, í fyrsta sinn eftir covid, og við ætlum að fara í gegnum ferli hönnunnar eins og þar. Ég er alveg vandræðalega spennt! Takk kennarar sem deila frábærum hugmyndum! #menntaspjall
Á æskuheimilinu er kaffi drukkið allan sólarhringinn. Besti bollinn er fyrir svefninn. Flestu samferðafólki mínu finnst þetta stórfurðulegt. Þegar ég fór í greiningu í fyrra heyrði ég að þetta væri leið hjá lyfjalausum til að ná fókus og ró. Kveðja frá 13.bolla dagsins... #adhd
foreldrum eftir frí hvað öll hafigott af meiri rútínu þá getur tekið á að venjast henni aftur, fyrir fullorðna og hvað þá börn.
Ég ætla að breyta áður skipulagðri kennslu á morgun og leyfa meiri leik og afslappelsi. Aðeinsað njóta og slaka, á meðan við venjumst rútínunni aftur.
#menntaspjall-s pælingar. Í dag var óvenju mikil þreyta í hópnum og ég velti því fyrir mér hvort ég hefði gert eitthvað öðruvísi en vanalega, verið með of mikið og þungt skipulag eða eitthvað án þess að átta mig á hvað raunverulega ylli. Fattaði svo sjálf, á milli þess að
sækja mitt barn 1 og koma barni 2 milli tómstunda hvað það var mikið álag fyrir mig sjálfa að læra nýtt skipulag og hvað það reyndi á að muna hvort væri fótbolti í dag eða hljómsveit, hvenær ég kæmist sjálf í mínar tómstundir o.s.frv. Þó rútínan sé góð og oftast heyri ég frá
Þegar 12 ára stelpurnar fyrir aftan mif á fótboltaleik ræða hækkun stýrivaxta og áhrif þess á hagkerfið bendir það til þess að umræddir vextir hafi hækkað ansi oft síðustu árin, eða að kennsla í fjármálalæsi hafi stóreflst á sama tíma. Jafnvel bæði..
Það er tilhlökkun og spenna hjá mér fyrir morgundeginum þegar öll "börnin mín" mæta aftur í skólann eftir sumarfrí. Verður jafn gott að hitta þau öll og það verður að fá smá pásu frá mínum eigin börnum á meðan þau eru í skólanum 😂 #menntaspjall og #foreldratwitter
@SnaevarS@arnarar Sammála þessu. Á mínum vinnustað (grunnskóli) veiktust mjög margir þegar öllu var aflétt í janúar 2022, og síðan þá hafa bæði ég og börnin mín (sem erum almennt heilsuhraust) fengið fleiri flensur en 5 árin þar á undan til samans
@grullubangsi En gaman! Ég er frá næsta bæ, vestan megin við ána og mamma, pabbi, amma og 2 systkini mín búa þar enn. Hvar á Skógum er sveitin ykkar? :)