Þarf að beila á marathon um helgina og ákvað að reyna að selja startnúmerið. Ég er í áfalli yfir hversu margir danir (sem eru búnir að bjóða í barnaafmæli í september) eru bara “hmm af hverju ekki að skella sér 42km eftir þrjá daga”
leiðbeinandinn minn segir að það eigi að vera skemmtilegt að skrifa meistararitgerð en það er kjaftæði mér mun líða líkamlega og andlega illa á hverjum einasta degi þangað til ég skila þessu frá mér (eftir 3 mánuði)
Hot take en ég elska small talk. Þremenningur að tala um að hann var að byrja í HR og sé kominn með kærustu? We love to hear it. Stelpa sem ég þekki ekki í partýi að segja mér frá nýju vinnunni sinni? Segðu mér meira
það er 8-10 ÁRA biðlisti til að komast í sjósundsklúbb með saunu í köben. væri tilbúin að selja eitt nýra til að komast þangað inn. þið hafið það ansi gott í nauthólsvík, gerpin ykkar
versta hugmynd sem ég hef fengið á deiti? örugglega að borða þurrkaðan chili sem var í drykknum mínum og eyða svo næsta hálftímanum í að gráta úr sársauka og þamba mjólk til skiptis fyrir framan manninn