Augnablik-Einherji á morgun kl 14:00 á Kópavogsvelli. Góð upphitun fyrir Breiðablik-Fylki á sunnudaginn. Lið Augnabliks eru einungis skipað ungum leikmönnum sem eru uppaldir Blikar og sumir þeirra eru meira segja enþá í 2fl.
Flottur 5-0 sigur á Fjölni í kvöld hjá kvennaliði Augnabliks í bikarnum. Hér fer Vilhjálmur Kári þjálfari liðsins yfir markmið liðsins í sumar með undirspil af dýrari gerðinni í boði Justin Timberlake.
Eftir flotta æfingaferð og 2-0 sigur gegn KF kom svekkjandi tap í gær í vító gegn Árborg, það þýðir ekki að dvelja of lengi við það, áfram veginn og einblína á deildina. Einherji þarnæstu helgi, Laugardaginn 20 Júní á heimavelli okkar á Gervigrasinu í Fagralundi.
1-0 tap gegn Magna, áttum samt sem áður fínan leik og góða spilkafla oft á tíðum sem splundruðu vörn Magna-manna en inn vildi boltinn ekki, Þökkum þeim kærlega fyrir leikinn og móttökurnar.
Við förum norður um helgina og munum þar spila við Magna í kvöld kl 20:00 í boganum og KF á laugardaginn kl 14:00 á Dalvík. Stuðningsmenn okkar fyrir norðan eru beðnir um að mæta með hjartastuðtæki á leikina því við munum spilum okkar djarfa og skemmtilega bolta.
Andrés Pétursson og Jón Orri mættu í miðjuna hjá Hafliða Breiðfjörð og fóru yfir upphaf, fíflalæti og “fyrri partin” í sögu Augnabliks áður en við endurvöktum félagið árið 2006. Mælum eindregið með þessu skemmtilega viðtali. https://t.co/Kst08zyP3l
Þökkum öllum þeim sem tekið hafa þátt í styrktarleiknum okkar á facebook innilega fyrir og vonum að allir þeir sem hafa verið taggaðir en ekki tekið þátt geri slíkt hið sama þó svo að við ætlum alls ekki að neyða neinn í það. Hver króna skiptir okkur máli núna. TakkTakk
Við höfum reynt að gera gott úr þessu með allskyns keppnum síðustu vikur. Aðalsteinn Hilmarsson sigraði í gær Online Fifa mót Augnabliks eftir 1-0 sigur á Eika Blöndal í úrslitaleiknum, agaður varnarleikur og gott posession skilaði sigrinum.
3-3 jafntefli gegn Víði Garði síðustu helgi og 3-2 tap gegn Njarðvík í dag, flott frammistaða gegn liðum í 2 deild og ekkert nema bjartir tímar framundan.
Kvennalið Augnabliks að taka við háttvísisverðlaunum KSÍ rétt í þessu, eðlilega segja sumir, þú brýtur ekkert rosalega mikið á þér þegar þú ert alltaf með boltann.
3-3 jafntefli gegn Kára og 3-0 í vító þar sem Sindri Snær Vilhjálmsson át allar 3 spyrnurnar og þakkaði pent fyrir sig, Arnar Laufdal átti spyrnu kvöldsins.
Kári-Augnablik 20:00 í Akraneshöll, linkur á leikinn hér fyrir þá allra hörðustu, @hrafnkellfreyr verður ekki í markinu í þetta skiptið, sem betur fer fyrir allt og alls : https://t.co/IuI6GdwOdJ