➡️ Um 18% íbúa á Íslandi voru með erlendan ríkisborgararétt árið 2024. (Hagstofan)
➡️ 70% þeirra sem sættu gæsluvarðhaldi árið 2024 voru erlendir ríkisborgarar. (Fangelsismálastofnun)
➡️ 33% þeirra sem afplánuðu dóm árið 2024 voru erlendir ríkisborgarar, sem er það mesta frá upphafi. (Fangelsismálastofnun)
➡️ 29% grunaðra gerenda í kynferðisbrotamálum árið 2024 voru erlendir ríkisborgarar. Sama hlutfall það sem af er ári 2025. (Ríkislögreglustjóri)
➡️ Erlendir ríkisborgarar grunaðir í helmingi hópnauðgana það sem af er ári 2025. (Ríkislögreglustjóri)
Nei, með þessum tölum er enginn að gera lítið úr afbrotum Íslendinga - allt slíkt tal er þvæla - heldur þarf að herða refsingar fyrir alla afbrotamenn að mínu mati. Í ljósi framanritaðs, hlýtur að vera eðlilegt að fólk spyrji sig á hvaða vegferð við erum.