🩸🩸 NEYÐARKALL 🩸🩸
Lengd opnun í dag, til 17, á Snorrabraut, Reykjavík.
Neyðarinnköllun í gangi - mikil þörf á Oneg og Aneg.
Blóðgjafar beðnir um að hafa samband sem allra fyrst og bregðast vel við boðum í dag!
Vinsamlegast deilið sem víðast.
Í ljósi aðstæðna höfum við breytt opnunartíma okkar í Reykjavík: Opið mán-fim frá 08-18.
Blóðgjafar eru beðnir um að bóka tíma í blóðgjöf og láta vita ef þeir veikjast innan við viku frá blóðgjöf. 🩸🩸
O- blóðgjafar eru sérstaklega beðnir um að láta sjá sig í vikunni/eftir helgi.
Slysin gera ekki boð á undan sér og lagerinn okkar er því miður ekki nógu góður núna.
O- blóð er sent á blóðstöðvar út um allt land og í þyrlu landhelgisgæslunnar og nýtist oft í verstu slysunum.
Blóðbankinn þakkar kærlega fyrir frábær viðbrögð og góða blóðsöfnun núna fyrir hátíðarnar. 🥰
Næst er opið í blóðsöfnun mánudaginn 30. desember.
Takk fyrir að hjálpa okkur að hjálpa öðrum - gleðilega hátíð! ♥️
#blodbankinn
Blóð er ekki bara notað í slysum, ólíkt því sem margir halda.
Blóðhlutar eru gefnir sjúklingum sem hluti af meðferð við allskonar sjúkdómum t.d. krabbameini.
Sjúkdómar fara ekki í frí um jólin og því þurfum við auka birgðir af blóði fyrir hátíðarnar.
Opið í Rvk kl8-19 í dag!🩸
Blóðgjöf er góð jólagjöf ♥️
Það er alltaf vöntun á blóði yfir hátíðarnar og viljum við því hvetja blóðgjafa til að láta sjá sig hjá okkur í desember.
#blodbankinn
Vegna veðurs lokar blóðsöfnun í Reykjavík kl. 13 í dag.
Lokað er á Akureyri.
Þrátt fyrir veður þá sárvantar okkur A+ og O- blóðgjafa í dag og viljum biðja þá sem geta að koma og gefa fyrir kl. 13 í dag. 🅰️🅾️🩸
Vinsamlegast RT - blóðgjöf er lífgjöf! ♥️
#blodbankinn