Fríða Ísberg með fyrsta eintakið af nýrri skáldsögu, Huldukonan, sem væntanleg er núna í byrjun nóvember 🫥👏👏
Forsala er í fullum gangi hjá Skáldu bókabúð (https://t.co/z9aRZzrFwd). Nælið ykkur í áritað eintak á tilboðsverði, 6.990 kr. ef notaður er afsláttakóðinn „huldukonan”
Mara kemur í heimsókn eftir Natöshu S. er komin út.
„Magnað verk og sætir miklum tíðindum.“
- Egill Helgason
Mara kemur í heimsókn fjallar um heimkomu til Rússlands eftir langa fjarveru, en er um leið uppgjör við pólitískt og menningarlegt ástand.
On the Calculation of Volume I, written by Solvej Balle and translated by Barbara J. Haveland, ‘will open the reader up to the many shades of thinking and being in their own everyday lives.’
Find out more about the shortlisted book: https://t.co/XKyOJ2os2R
@FaberBooks
On the Calculation of Volume I, written by Solvej Balle and translated by Barbara J. Haveland, follows Tara Selter – a woman who has slipped out of time.
Find out more about the #InternationalBooker2025-longlisted book: https://t.co/XKyOJ2os2R
„Síðasta áratuginn hafa bækur nokkurra kvenna sem fara á tilfinningalegt dýpi sem lítið hefur verið kannað hér áður flotið upp á yfirborðið,“ skrifar Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir. https://t.co/lDRfo9HuzK
Páll Baldvin fagnar því að fá í hendur skáldsöguna Himintungl yfir heimsins ystu brún eftir Jón Kalman Stefánsson og óskar höfundi til hamingu með verkið um leið og hann þakkar fyrir það. https://t.co/47mInzo0aH
🌟 🌟 🌟 🌟 fær Sporðdrekar eftir Dag Hjartarson í Morgunblaðinu í dag:
„Sporðdrekar er spennandi, kvik og skarpskyggn samtímasaga sem lesendur munu hafa gaman af. Hún er að sama skapi vel skrifuð, metnaðarfull og þaulhugsuð. Tilvalin bók í jólapakkann!“
🌟 🌟 🌟 🌟 🌟 fær Himintungl yfir heimsins ystu brún í @heimildin !!!
„Það er gaman og fagnaðarefni að fá í hendur svo vandað, yfirgripsmikið og flókið verk. Óskum honum til hamingju og þökkum fyrir.“ - PBB
Eitrið í blóðrásinni – esseyja
Jón Karl Helgason las skáldsöguna Sporðdrekar eftir Dag Hjartarson og stiklar á fallegum steinum þegar hann setur hana í bókmenntalegt samhengi. https://t.co/SgjPDSQqa8
🌟 🌟 🌟 🌟 ✨ fær Breiðþotur eftir Tómas Ævar Ólafsson í Morgunblaðinu👏👏✊
„Breiðþotur er metnaðarfull og vel heppnuð loftslagsskáldsaga sem ávarpar stór álitamál í samtímanum, þar á meðal tæknihyggju, pólitíska skautun og voveiflegar afleiðingar hamfarahlýnunar.“
⭐️⭐️⭐️⭐️✨ í MBL
Áhrifarík og sterk skáldsaga sem grípur átakanlega inn í nútímann rúmum 400 árum eftir þá atburði sem lýst er og mun lengi standa sem ásökun og ákæra á þá sem óttast fjölbreytileikann og fela grimmd sína og græðgi á bak við lygar og falsfréttir
Eva Rún Snorradóttir hlaut í dag tilnefningu til Fjöruverðlauna fyrir skáldsöguna Eldri konur 👏👏🍾🥳
Eldri konur hefur fengið frábærar viðtökur 👌
🌟 🌟 🌟 🌟 - Morgunblaðið
🌟 🌟 🌟 🌟 - Heimildin
„Feikilega magnað“ - ÞT / Kiljan
„Falleg saga um vináttu og einsemd, sem og ærslafengin paródía á formúlubókmenntir,“ skrifar Ásgeir H. Ingólfsson um Friðsemd eftir Brynju Hjálmsdóttur. https://t.co/d9xnPcdhfm
„Stundum gerast bókmenntaleg tíðindi!”
⭐️ ⭐️ ⭐️ ⭐️ ⭐️ BREIÐÞOTUR eftir Tómas Ævar Ólafsson í Heimildinni!!
„Ásgeir H Ingólfsson hreifst svo af bókinni Breiðþotur að hann gefur hér með fimm stjörnur í fyrsta skipti í sjö ár.”
Ásgeir H. Ingólfsson hreifst svo af bókinni Breiðþotur að hann gefur hér með fimm stjörnur í fyrsta skipti í sjö ár, síðan hann byrjaði að rýna í bækur fyrir Stundina og síðar Heimildina. Lesa bókarýni https://t.co/xMIcMYDUZe
Á þessum degi er viðeigandi að kynna sér skáldsöguna Breiðþotur eftir Tómas Ævar Ólafsson ✈️ Metnaðarfull saga um vináttu, uppgang öfgaafla, loftslagsmál og upphafið að endalokum heimsins eins og við þekkjum hann 🔥
Það er verið að skutla þessari ljóðabók í búðir. Ég veit að ljóð eru almennt frekar þurr og boring en í þessari er bæði minnst á snekkjurokk og samfélagsmiðla og það er líka grautaruppskrift og mynd af dauðum manni sem át grautinn í henni svo ég reyni a.m.k. að skemmta lesendum.
Meistaraverkið Litli prinsinn eftir Antoine de Saint-Exupéry er komið út í nýrri þýðingu Arndísar Lóa Magnúsdóttur 🤴🌟🦊
„Maður sér ekki skýrt nema með hjartanu. Það mikilvægasta er ósýnilegt augunum.“