Gráar býflugur eftir @AKurkov er komin í verslanir! „Hlý og afar fyndin bók frá besta skáldsagnahöfundi Úkraínu,“ segir New European. Kúrkov hlaut Alþjóðleg bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness árið 2022. Áslaug Agnarsdóttir þýddi af stakri snilld.
Færðu mér stjörnurnar eftir @jojomoyes er #1 í @pen_eym þessa vikuna. Nickel-strákarnir eftir @colsonwhitehead og Skollaleikur eftir @ArmannJa eru líka á topp tíu. Ekki slæmt!
Önnur prentun af Kokkál eftir @DNADORI er eitt fyrsta fórnarlamb óveðursins. Vonandi verður hægt að skipa upp úr Laxfossi á morgun – en enn eru eintök í verslunum!
Byrjaði að lesa þessa í gær og gat ekki slitið mig frá henni. Kokkáll er frábær skáldsaga. Magnaður persónur, stórkostlegar lýsingar og bæði fyndin og hryllileg í senn. Mæli heilshugar með þessari bók. Til hamingju @DNADORI
#kokkáll#dnadori
Í dag fögnuðum við útgáfu á Urðarketti eftir @ArmannJa í @pen_eym - enda full ástæða til. „Ég er Urðarköttur. Ég myrði. Ég drep. Mér verður ekkert að aldurtila. Þú munt aldrei ná mér.“