Spjall við dóttur á 4.ári
Dóttir: Pabbi, spilaðu á Spotify afmælislagið með Sykurpúðunum!
Ég: Ha..er það eitthvað af leikskólanum eða af Youtube?? Ég þekki þetta ekki!
Dóttir: Það sem þú spilaðir í gær...
Ég: Þú meinar Sykurmolana
Dóttir: JÁ!
@markusardottir Hvað ertu að drekka nocco!? Hef ég ekkert kennt þér, ekki einu sinni að drekka kaffi! 😉 áhrif náttúrulegs koffín í kaffi eru minni en af synthetic koffíns í orkudrykkjum!
Misheyrn dagsins! Var að ræða við Jökul félaga minn um gönguferð helgarinnar í kringum Langasjó. Við erum að ræða kuldann um nóttina og tjaldið okkar. Hann segir "við verðum náttúrulega ÞRÍR í tjaldinu" en ég heyrði "við verðum náttúrulega að RÍÐA í tjaldinu". #brokebackmountin
Sálarskip mitt fer hallt á hlið
hrekur til skaðsemdanna,
af því það gengur illa við
andvirði freistinganna.
Þessa vísu orti Bólu-Hjálmar (1796-1875) um freistingar í sveitasamfélagi Íslands á 19.öldinni!
Hvaða freistingar ætli að hann hafi verið að tala um? Kona prestsins?