Málflutningur Já-sinna er stórundarlegur, þeir sem eru þeim ósammála eru vitleysingar og Ísland þarf að segja sig til sveitar í Brussel vegna þess að við erum svo aum.
Annað sem þeir hafa haldið fram er að Ísland verði að ganga í ESB vegna þess að við getum ekki treyst Bandaríkjunum lengur til að verja okkur.
Við þetta er tvennt að athuga. Í fyrsta lagi býr Evrópa í dag ekki einu sinni yfir hernaðarmætti til að verja sjálfa sig og því hefur vægi Evrópu á alþjóðasviðinu aldrei verið minna á meðan Bandaríkin eru mesta herveldi sögunnar. Í öðru lagi hafa Bandaríkin miklu ríkari hagsmuni af því að verja Ísland heldur en Evrópa.
Gefum okkur að Evrópu tækist að byggja upp hernaðarmátt sinn á ný. Sú ógn sem menn horfa helst til er Rússland, síðan Kína og mögulega úr Mið-Austurlöndum (langsótt í dag en eldfimt landsvæði). Ef við horfum á landakort sjáum við að ef sótt yrði að Evrópu þá yrði það aldrei um Ísland. Það væri því ólíklegt hagsmunamat fyrir Evrópu að flytja hluta hernaðarmáttar síns til Íslands á meðan sótt yrði að álfunni á landi úr austri. Fyrir Bandaríkin aftur á móti skipta yfirráð yfir íshafinu og Atlantshafinu höfuðmáli fyrir varnir. Auk þess búa Bandaríkin yfir hernaðarmætti og hafa aldrei sýnt Ísland annað en vinsemd og virðingu þrátt fyrir tilraunir núverandi utanríkisráðherra til að kæra okkur inn í hinar ólíklegustu deilur sem hafa ekkert með öryggishagsmuni Íslands að gera.
Eru þetta réttu aðilarnir til að spyrja hvort samráð um skattlagningu (koma í veg f. samkeppni) sé góð hugmynd? Ætli skattgreiðendur séu á sama máli?
https://t.co/AAxNwwK96i
"það sé engu hagkerfi hollt að einn einstaklingur hafi þau völd sem Skúli Mogensen hafði hjá Wow air." Segir umsækjandi um stöðu Seðlabankastjóra.....
https://t.co/LIU1VA9MFu