Hákon Rafn Valdimarsson varð í gær 21. Íslendingurinn til að spila í efstu deild á Englandi 🌟
Hákon varði mark Brentford sem gerði markalaust jafntefli gegn Brighton og stóð sig mjög vel 👏🏽
Knattspyrnudeild Gróttu er gríðarlega hreykin Hákoni - þvílík fyrirmynd 💙
Arnfríður Auður Arnarsdóttir leikmaður meistaraflokks Gróttu er þessa dagana stödd í Danmörku þar sem hún æfir með úrvalsdeildarliði HB Køge. Þar tók Gróttukonan Emelía Óskarsdóttir vel á móti henni. Aufí hefur bæði æft með U19 ára liði og aðalliði félagsins. Frábær reynsla! 🌟
Í gær skrifaði Rúnar Páll Sigmundsson undir þriggja ára samning um að þjálfa meistaraflokk karla hjá Gróttu. Rúnar Páll er knattspyrnuáhugafólki að góðu kunnur og fögnum við því að fá þennan reynslumikla þjálfara inn í félagið. Velkominn Rúnar! 🙌🏽
Það er gleðiefni að tilkynna að Dominic Ankers hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks kvenna. Dom, sem er 29 ára gamall Englendingur, kom til Gróttu sumarið 2021 og hefur síðan þá verið aðstoðarþjálfari í báðum meistaraflokkunum og þjálfað 2. og 5. fl. kk. Spennandi tímar! 🙌🏽
Pétur Theódór kominn heim 🙏🏽
Pétur Theódór Árnason hefur gengið til liðs við Gróttu frá Breiðabliki. Pétur er ekki einungis góður leikmaður heldur ennfremur sterkur og traustur persónuleiki sem hefur jákvæð áhrif á umhverfi sitt.
Velkominn heim Pétur! 💙
Sigur á Njarðvík og áfram í 32-liða úrslit Mjólkurbikarsins! 💥
Æsispennandi lokamínútur sem enduðu með sigurmarki Arons Bjarka Jósepssonar 💪🏽
Lokatölur 3-2 sigur, mörk Gróttu skoruðu Danina Timan, Ragnar Björn Bragason og Aron Bjarki Jósepsson.
Mynd: Eyjólfur Garðarsson 📸
Knattspyrnudeild Gróttu hefur tekið stórt skref í átt að frekari styrkingu og framþróun með því að
ráða Magnús Örn Helgason í nýtt og mikilvægt hlutverk sem yfirmann knattspyrnumála. Þessi ráðning
markar upphaf nýs kafla í sögu deildarinnar.
Meira á https://t.co/8JyYl9FbbR
Fyrsti Gróttumaðurinn í ensku úrvalsdeildina 🌟
Hákon Rafn Valdimarsson hefur skrifað undir samning við enska úrvalsdeildarfélagið Brentford sem gildir þar til 2028. Við erum gríðarlega hreykin af Hákoni sem er ungum iðkendum Gróttu frábær fyrirmynd.
Til hamingju Hákon 💙
Tómas Johannessen hefur gengið til liðs við hollenska úrvalsdeildarfélagið AZ Alkmaar og gerir við það þriggja ára samning. Tommi er 16 ára gamall og lék þrátt fyrir ungan aldur lykilhlutverk með Gróttu í sumar. Til hamingju Tómas 💙
Myndir: Eyjólfur Garðarsson og AZ Alkmaar 📷
Aufí skoraði glæsilegt mark í 4-1 sigri U18 gegn Svíþjóð á föstudaginn 🌟 Frábær frammistaða hjá þessum unga og efnilega leikmanni!
Gaman er að segja frá því að hin 15 ára gamla Aufí hefur spilað með þremur yngri landsliðum á árinu - U16, U17 og nú U18! 🙌🏽
Hákon hefur verið valinn markmaður ársins í Svíþjóð 🌟
Hákon Rafn var aðalmarkvörður Elfsborg á tímabilinu og fékk liðið aðeins 26 mörk á sig í 30 leikjum, en ekkert lið fékk færri mörk á sig.
Knattspyrnudeild Gróttu er gríðarlega hreykin af Hákoni og hans frábæru frammistöðu 💙
Unga og efnilega Aufí er í hóp U18 ára landsliðsins sem tekur þátt í æfingum og leikjum við Svíþjóð í nóvember 🇮🇸Knattspyrnudeild Gróttu er hreykin af því að eiga svona flottan fulltrúa í hópnum og óskum við henni innilega til hamingju með valið og góðs gengis í verkefninu 💪🏽💙
Rebekka Sif Brynjarsdóttir hefur verið valin í hóp U15 ára landsliðsins sem tekur þátt í UEFA Development Tournament í Portúgal 🙌🏽💙
Til hamingju Rebekka og gangi þér vel! 👏🏽🇮🇸
Hákon Rafn Valdimarsson (2001) has played 47 matches for @IFElfsborg1904 in the Swedish Allsvenska. He´s won 31 of them and kept 18 times a clean sheet! Impressive 🇮🇸📈👌
Matthías Guðmundsson hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks kvenna knattspyrnudeildar Gróttu. Melkorka Katrín framlengdi sinn samning við sama tilefni.
Knattspyrnudeild Gróttu fagnar því að hafa samið við þau og hlakkar til komandi samstarfs.
Myndir: Eyjólfur Garðarsson 📸