@5norri Ef áhersla stjórnvalda væri sú að innflytjendur ættu að læra íslensku og fylgdu því eftir með viðeigandi fjárfestingu, þá yrði til samfélag sem gæti viðhaldið sjálfbæru fjöltyngi. Án skýrrar stefnu þá verða svona pælingar marklausar.
@5norri Þarna er enn einn sérfræðingurinn úr tengslum við raunveruleikann. Fullorðnir innflytjendur og börn þeirra, sem fá ekki tilgang, hvata, þjónustu og tækifæri til að læra íslensku lenda í útilokun frá tungumálinu. Sem er staðan alltof víða með viðvarandi stefnuleysi.
@5norri Veit ekki hvernig það er hjá þeim uppá Höfða, en 70% af námskeiðunum sem við framkvæmum eru dagnámskeið fyrir fyrirtæki/stofnanir/sveitarfélög🙂
@elvargeir Rakst einmitt á tæplega 20 ára gamla grein eftir Björn Berg á .net um daginn um sömu atriði og við erum að díla við í dag. Sennilega skrifuð 2008. En ég segi bara takk fyrir að halda umræðunni lifandi, eins leiðinlegt og það er að þurfa að endurtaka þetta, ítrekað.
@einasig 2 Fyrirtæki hafa ekki sterka hvata til að innleiða eða viðhalda íslensku sem samskiptamáta á vinnustöðum með marga innflytjendur. Þar af leiðir dugir brotin enska oft til þess að koma sér áleiðis dag frá degi. Niðurstaðan er sú að fólk byrjar íslenskunám 2-5 ár inn í búsetu.
@einasig 1 Stefna stjórnvalda um íslensku fyrir innflytjendur, tilgangur og hvatar íslenskunáms í íslensku samfélagi, eru ekki skýrir. Fjármögnun verkefnisins er fjarri því sem þekkist á Norðurlöndum, sem gerir námskeið dýr og fráhrindandi.
Ég held að sá stjórnmálaflokkur sem stingur upp á því að brjóta nýtt land OG þétta byggð muni slá í gegn.
Íslenski vandinn - öfgarnar. Við byggðum dreift forever, hættum svo nánast að byggja til að laga það.
Og nú sýnist mér þeir vera lofa því að hætta að þétta, til að laga hitt - bara svo einhver geti komið eftir nokkur ár og lofað að laga það.
Borgir þurfa að stækka.
Byggðin þarf að vera vönduð og þétt - ekki annað hvort. Sá sem segir þér annað, hann er ekki lausnin - hann er vandinn.
Það má segja milljón hluti um og gegn og með Borgarlínu en kæru lesendur mínir, hvort sem þið eruð nýju hægri sinnuðu survival of the fittest vinir mínir eða gömlu vinstri sinnuðu dýrin í hálsaskógi félagar mínir...
Ekki hlusta á einhvern tala um Borgarlínu, sem talar bara um samgönguhlutann. Sá aðili er annað hvort of vitlaus til að skilja verkefnið, eða það er af annarlegum hvötum sem hann hundsar hvað verkefnið er - það er skipulagsverkefni.
Hérna er útskýringin í sinni einföldustu mynd.
Það á að strengja línu yfir Reykjavík og þróa byggðina eftir þeirri línu - svo borgin fúnkeri. Nágrannasveitarfélög munu svo strengja línu, á þá línu - og þróa byggðina eftir henni.
Þetta er svo fkn beisikk. Að maður þarf bara að hafa séð framan á Sim City hulstrið til að vita að þetta er það eina sem virkar; þjónustan verður að vera nálægt íbúunum og það þarf að vera auðvelt að komast á milli.
Vegakerfi í borgum eru hæg og óáreiðanleg, engri borg í heiminum hefur tekist að laga slæma umferð.
Þess vegna þarf þessi lína að standa utan umferðarinnar - eins og í öðrum borgum í heiminum.
Það má svo hafa milljón skoðanir um hvar á að strengja þessa línu, hvað hún má að kosta og hverskonar tæki við ætlum að leiða í gegnum hana og hvort tölvur muni stýra þessum tækjum eða fólk, hvort við ætlum að grafa hana eða byggja hana upp á pöllum eða hvað.
En þessi lína er nauðsynleg. Hún er það í stækkandi borg.
En ef þú ferð að spyrða þessu saman við mislæg gatnamót eða fjárfestingu í gatnakerfinu eða einmitt niðurlægja sjálfan þig með því að láta eins og það sé einmitt annað hvort eða...Að við þurfum annað hvort að þróa borgina eða laga umferðina á Miklubrautinni.
Þá held ég að þér myndi líða betur í dreifðari byggð og minni bæ og ættir kannski ekki að taka mikinn þátt í nákvæmlega þessari umræðu.
ég veit ekki afhverju ég skrifaði þetta. ég settist bara niður til að leita að símanúmeri.
@thossmeister Íslenska er lítið tungumál. Stjórnvöld hafa ekki brugðist við með því að skapa íslensku skýra opinbera stefnu um hagnýta notkun þess í fjölmenningarsamfélaginu sem Ísland er. Íslenskan er á opnum tungumálamarkaði. Afleiðingin er endalaus óþarfa núningur.
@thossmeister Stutta svarið við seinni spurningunni er að þessir þjónar eru ekki of vitlausir til að læra íslensku. Hvort sem það er matseðill, grunnur til að eiga hagnýt samskipti eða meira. Þau hafa einfaldlega ekki hvata til þess að læra íslensku. Svarið við fyrri spurningunni er 1/2….
@5norri Frábær umræða.
Varðandi þátt fullorðinna innflytjenda þá hefur stefnuleysi stjórnvalda bitnað gríðarlega á aðgengi þeirra að íslenskunámi. Staðan veldur umræddum núningi. Lausnin felst í að skapa skýra stefnu um tungumálið í nútíma samfélagi og fylgja því eftir með fjármagni.
Anna Maria er með spennandi og metnaðarfullar hugmyndir og ég hlakka til að vinna með henni að áframhaldandi uppbyggingu næsta kennsluvetur
https://t.co/6Z4pUasOej
@ravenk72 Myndi taka því sem hrósi. Það er líklega eini titillinn yfir tímabilið sem þú nefnir, sem stuðningsmönnum annarra liða en City er ekki sama um