@PalssonThordur Er fólk sem fær dvalarleyfi á grundvelli fjölskyldusameiningar á framfæri ríkisins? Langflestir sem eru þarna að fá fjölskyldur sínar eru vinnandi fullt starf -
@orvitinn Passar ekki hugmyndafræði rasista við upphaflegu merkingu orðsins heimskur - sá sem heldur sig heima -"Íslenska orðið "heimskur" er forn norræn líking við það fyrirbæri, þegar persóna dæmir alla hluti, jafnvel alla veröldina eftir því einu, sem hann sér heiman frá sér."
@HaukurBragason Þegar ég hóf minn starfsferil var ég eitthvað að kvarta við yfirmann minn yfir einhverju sem mér fannst óþarflega flókið - þá sagði hann við mig: "Ef þetta væri ekki flókið þyrftum við ekki þig". Hef haft þetta bakvið eyrað síðan - kannski eitthvað fyrir ráðherra að hugsa út í?
@katrinat@DoraBjort Ég er ekki ósammála þér. Finnst bara skrítið að beina spjótum að þeim sem eru að berjast fyrir að breyta þessum bílakúltúr í stað þeirra sem berjast fyrir meiri umferð og meiri mengun.
@oskasteinn Virkilega aumt. Keyrt af fullum krafti á iðnað sem krefst mikils mannafla - flutt inn fólk í massvís til að keyra áfram hagvöxt en ekkert lagt í innviði til að halda við vaxandi mannfjölda, frekar skorið niður. Svo þegar allt er komið á kaf er ráðist á einn viðkvæmasta hópinn.
@katrinat@DoraBjort Ég er í leitunum og allar aðgerðir til að auka umferðaöryggi hafa verið gagnrýndar af sjálfstæðismönnum í borginni. Grensásvegur - Háaleitisbraut osfr.
@doridna Þegar ég kom til hans að fá aðstoð að fá einingar metnar frá öðrum skóla til að geta útskrifast fyrr spurði hann mig: "Afhverju viltu það? Þetta eru skemmtilegustu ár lífs þíns."
@EinarKF Mér þótti einmitt afskaplega merkilegt að sami ráðherra og hneykslast á hugsanlegum flugvelli í Hvassahrauni eyðir almannafé í mislæg gatnamót fyrir byggð úti í sama hrauni sem er ekki einu sinni á skipulagi.