JUST IN - President Trump: "Every public school in America is now on notice that if they tell a child that they're trapped in the wrong body, they are committing child abuse"
Þingmenn Viðreisnar náðu að koma helsta baráttumáli sínu um að Ísland gangi í ESB í gegnum Alþingi með því að saka þá þingmenn sem vildu ekki þjóðaratkvæðagreiðslu um að treysta ekki þjóðinni. Ástæðan fyrir því að kosið er um aðildarviðræður en ekki aðild er að það er ekki þingmeirihluti fyrir aðild og kosning um aðild hefði verið tilgangslaus þar sem hún hefði alltaf tapast.
Síðan þá hafa þingmenn Viðreisnar (og að hluta Samfylkingarinnar) lítið gert til að kynna fyrir þjóðinni hvað aðild að ESB felur í sér. Baráttan hefur þess í stað snúist um að sannfæra óákveðna kjósendur um að "segja já til að sjá“ eða "kíkja í pakkann“ eða bara að veita Viðreisn umboð til að hefja aðildarviðræður án þess að telja sig þurfa að hafa neina almennilega umræðu um kosti eða galla Evrópusambandsins.
Nú birtist svo myndband frá þingmanni Viðreisnar þar sem hún segir að fólk sem ætlar að segja nei eigi samt að segja já, því þá verði hægt að taka umræðuna um ESB síðar.
Ef ég væri nokkuð viss um að vilja að Ísland færi í aðildarviðræður við ESB myndi málflutningur af þessu tagi einn og sér fá mig til að segja nei. Hvernig heldur fólk að þessir sömu aðilar munu síðan selja aðildarsamninginn að loknum aðildarviðræðum?
Surrender takes many forms. Now the Yes-side in the Referendum has given up using Ministers and MPs to present their case. Instead hired an actor from the comic program #Spaugstofan to repeat their platitudes.
Er enn verið reyna að telja okkur trú um að aðildarviðræður við ESB snúist bara um vexti á húsnæðislánum. Viðræðurnar snúast alls ekki um slíkt.
90 mkr. lán og borgar 80 þúsund kr. á mánuði af láninu sem hann vill ekki útskýra hvernig hann fær út.
Trúverðugt?
Lesa má pólitískan vilja æðstu stjórnenda Evrópusambandsins úr þeirri staðreynd að þjóðir eins og Pólverjar og Ungverjar fá – með ákúrum, dómsmálum og sektum – bágt fyrir að vilja gæta sinna landamæra.
Líkt og ég fjallaði um í gær og hef ítrekað vakið máls á, meðal annars í fyrirspurnum til dómsmálaráðherra á Alþingi, vekur það ekki sömu viðbrögð þegar Spánverjar taka upp á verulegum tilslökunum á sínum landamærum og lögfesta dvöl milljóna manna sem komust inn í landið ólöglega. Þar með grafa þeir undan sameiginlegum ytri landamærum og senda þau skilaboð til umheimsins að leiðin inn í Evrópu sé bara að smygla sér inn.
Þessi ólíku viðbrögð undirstrika þann veruleika að Evrópusambandið hefur á undanförnum árum og áratugum mun frekar verið notað sem tæki til þess að knýja áfram vanhugsaðar og skaðlegar hugmyndir inn í stefnumótun aðildarríkjanna, frekar en að vera sanngjarnt og lýðræðislegt samstarfsbandalag stoltra og sjálfstæðra Evrópuþjóða.
Það er sannarlega bakslag í Evrópu. Bakslag í öryggi almennings.
Á Íslandi eru foreldrar að verða tregari til að leyfa börnum sínum að leika úti án eftirlits, konur veigra sér við leigubílaferðir og víða um Evrópu er beinlínis or��ið hættulegt sækja jólamarkaði, tónleika eða gleðigöngur.
Þessi þróun er ekki afleiðing „hægri sveiflu“. Hún er þvert á móti afleiðing þess að sjónarmið á borð við stefnu Miðflokksins hafa of lengi ekki fengið hljómgrunn eða framgang í Evrópu. Fjölmiðlar, aktivistar og vinstri-popúlistar hafa séð til þess.
Hryðjuverkaárásin í Berlín er skelfileg áminning um hvert þróunin getur leitt. Þetta er hræðilegt, á ekki heima í Evrópu og verðum við að sporna við þessari þróun.
Tími heilbrigðrar skynsemi er núna og verðum við að geta átt hreinskilið samtal um rót vandans. Þar munar um Miðflokkinn.
Ég hef skrifað um þetta félag aðeins áður en það er vert að vita að ef þú sérð eitthvað tengt rauðri rós í merki stjórmálaflokks þá er það tengt þessu félagi.
Þetta félag er nefnt í höfuðið á Fabius, hershöfðingja í Rómarveldi til forna sem fann upp á aðferð við að díla við Hannibal: ekki mæta honum í beinni orrustu, heldur ráðast á hann óbeint og hægt og rólega draga úr honum allan vilja til að halda áfram. Hjá þeim tók það 13 ár áður en hann snéri aftur til Karþagó.
Fabian Society hefur verið að beita sömu nálgun um allan heim í hátt í 150 ár. Aðferðin er að bara hægt og rólega koma sér inn í öll stig samfélagsins og beina þeim í áttina að sósíalisma.
Þetta er í grunnin sama hugmyndafræði og hjá kommúnistunum nema bara ekki byltingakennd og því ekki augljóst að breytingarnar séu að eiga sér stað.
Jæja þá hafa Hollendingar gefið út að þeir muni ekki sætta sig við að Íslendingar standi utan sameiginlegu fiskveiðistefnu ESB. Þá er það útrætt.... 🤷♂️
Christian Zedig’s wife Emelie writes after the news that her husband has been beaten to death in at a World Cup fan zone in Copenhagen while watching Norway-Ivory Coast.
The Swedish football supporter and off-duty policeman was attacked along with other Norwegian and Swedish fans by supporters of Ivory Coast moments after Norway scored the winning goal.
Christian leaves behind his wife and two young daughters.
The killer is still on the run.
Það er örugglega skrítið að vera hluthafi í Sýn. Þú ert með Vísi og fleiri einingar í söluferli en á sama tíma eru nokkrir blaðamenn Vísis markvisst að reyna að grafa undan trúverðugleika miðilsins - og þar með að lækka verðmæti hans. Nokkuð sem nýir eigendur hljóta að skoða.
Umhverfisskattar eru svo háir að við gætum gefið öllum yfir 250 þúsund á ári
Það er miljón, skattlaust fyrir fjögurra manna fjölskyldu
Þessir skattar eru að hækka verulega ár eftir ár og ég er með 2 ára gamlar tölur
Tími til að hætta þessu, ekki bara á strandveiðar
https://t.co/PI5oDo1SuC
þetta er fyndið af því að þeir vita svarið en þeir vita líka að tæknilega séð máttu ekki segja hann. það myndi enginn segja neitt ef hann segði að hann vildi frekar menapt nágranna (lygi) heldur en ef hann segðist heldur vilja norskan nágranna (sannleikur). þetta er fyndin spurning af því að hún er absúrd, þetta er fyndið af því að þetta opinberar þá lygi sem við höfum kollektívt sætt okkur við að lifa í. húmor er frábær leið til að fletta ofan af lygum
mjög lýsandi fyrir evrópusinna að framkvæmdastjóra evrópuhreyfingarinnar hryllir við því að íslandi sé forgangsraðað á ÍSLANDI
evrópuhreyfingin berst sumsé ekki fyrst og fremst fyrir hagsmunum íslands heldur eiga hagsmunir annarra að koma fyrst, got it takk.
Bruðlað með fé almennings.
Carbfix er loftslags gæluverkefni sem á ekkert skylt við kjarnahlutverk Orkuveitunnar: að útvega okkur orku og vatn á hagkvæmu verði. Það þurfti meira að segja að breyta lögunum árið 2023 til að troða þessu inn í hlutverk OR, sem er skandall að Alþingi hafi samþykkt.
Rekstrartekjur hröpuðu úr um 1,5 milljörðum í 370 milljónir á einu ári. Reksturinn stendur ekki lengur undir eigin launakostnaði. Eigið fé neikvætt um rúma tvo milljarða og félagið skuldar OR 6,5 milljarða.
En laun stjórnenda hækka um 21%.
Áhættan af gæluverkefnum stjórnenda á ekki að lenda á heimilunum í hærra orkuverði.
ég vil að margrét tjái sig sem allra mest því hún er gangandi sönnun þess að fræðasamfélagið hefur tapað allri tengingu við veruleikann, lygin sem hún hefur haldið uppi undanfarin ár er alltaf að verða illverjanlegri með hverju árinu sem líður, nekt keisarans augljósari og augljósari
Kjartan Kjartansson, starfsmaður Vísis, fær greitt fyrir að reyna að selja Íslendingum þá hugmynd að Ísland eigi að ofurselja sig skrifræðisveldinu í Brussel. Nýjustu tilraun hans til slíkrar sölumennsku má lesa í dag undir fyrirsögninni "Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól" og er þar vísað til stækkunarstjóra ESB sem segir að verið sé að "smíða kerfi" sem miðar að því að tryggja undirgefni nýrra aðildarríkja við nýtt stjórnarfyrirkomulag ESB: „Ef ný aðildarríki fylgja reglunum þá gerist ekkert. Ef þau fylgja ekki reglunum munu þessir varnaglar bíta fast." Ef Kjartan Kjartansson telur að þetta eigi að lokka Íslendinga til fylgispeki við ESB þá hlýtur hann að halda að við séum illa haldin af Stokkhólmsheilkenninu. Og kannski er það rétt hjá honum, a.m.k. virðist stór hluti Íslendinga enn láta sér lynda það að sitja spakir út í horni með Ríkismeinvarpið í fullum gangi og horfa aðgerðalausir á gömlu, "góðu" stjórnmálaflokkana stýra þjóðarskútunni með sívaxandi slagsíðu. Þessu sofandalega fólki til afsökunar vil ég segja það að Stokkhólmsheilkennið er víst ekki meðvituð ákvörðun, heldur djúpstætt sálfræðilegt viðbragð sem sprettur af algeru valdaleysi.
En nú raunveruleg hætta á að sofandahátturinn umbreytist í eitthvað enn verra, sbr. það að ókjörinn "valdamaður" ESB talar um nýjar aðildarþjóðir eins og rakka sem þurfi að hafa í stuttri ól. Við Íslendingar, bæði aðfluttir og innlendir, erum hér af því við viljum ekki vera þrælar annarra. Þræll er sá maður sem ræður ekki yfir sínum eigin líkama og er skyldugur til að gera það sem eigandi hans fyrirskipar honum að gera af ótta við refsingu sem mun "bíta fast". Þræll getur verið keyptur og seldur. Frjálsir menn eiga líkama sinn eins og frjálsar þjóðir eiga land sitt. Ef þú stjórnar líkama þínum (og landi) ekki sjálfur, þá er nóg til af fólki sem er tilbúið að stýra þessu fyrir þig. Margur græskulaus maðurinn hefur lagst til svefns sem frjáls maður og vaknað í viðjum sem þræll. Nú er mál til komið að værukærir Íslendingar vakni til ábyrgðar og til varnar fyrir landið sitt, fjölskyldur og afkomendur. Nú þurfa þjóðhollir einstaklingar að standa í fæturna gagnvart fólki sem á sér þann draum að binda okkur í "stutta ól" með hótunum um að við verðum "bitin fast" ef við hlýðum ekki. Slík "gylliboð" kalla ekki á annað en skýrt og staðfast NEI.