Nú þarf ekki lengur að hafa áhyggjur af því að muna vegabréfsnúmerið, enda einfaldlega hægt að opna það með nokkrum smellum í símanum.
Stafrænt Ísland er á fullu skriði á nýju ári rétt eins og því liðna.
https://t.co/ovbRbfJBPu
Nú er hægt að sjá niðurstöður álagningar sundurliðaðar eins og í fyrra. Hér er dæmi um álagningarseðil sem sýnir skiptingu milli skatta til ríkis og útsvars til sveitarfélaga og skiptingu niður á málaflokka.
Markmiðið er sem fyrr gagnsæi og aðhald við nýtingu almannafjár.
Ég mælti fyrir frumvarpi um aðgerðir til að mæta áhrifum verðbólgu á Alþingi í dag. Markmiðið er að verja lífskjör viðkvæmustu hópa samfélagsins sem finna mest fyrir áhrifunum, en ég lagði áherslu á að málið fengi skjóta afgreiðslu.
https://t.co/8mzp4A8N4t
Samstarf Háskólans á Akureyri og Háskólans í Reykjavík hefur gengið mjög vel og efling STEAM greina og aukið samstarf fellur að mínum áherslum til að efla þekkingu, menntun og tengja nám við atvinnulíf svæða. Það verður spennandi að fylgjast með þessu.
Það var gaman að segja frá stórum fréttum á Austurlandi í dag þar sem ég ávarpaði hátíðarfund Austurbrúar og greindi frá því að í fyrsta sinn í haust verður hægt að leggja stund á háskólanám þar. Mikilvægt tækifæri fyrir ungt fólk að stunda nám á sínu svæði og styrkja samfélagið.
Jákvæð þróun í tölum @Hagstofan
- Aldrei lægra hlutfall heimila átt erfitt með að ná endum saman
- Aldrei færri talið þunga byrði af húsnæðiskostnaði
- Kaupmáttur ráðstöfunartekna hefur hækkað um þriðjung síðasta áratug
https://t.co/cNlNuDsw4w
Lokafrestur til að skila framtali í dag!
Þessi reitur er nýr - nú má draga að allt að 350 þús. á ári frá skattskyldum tekjum v. framlaga til almannaheilla.
Meðal annars má styrkja íslensk samtök sem styðja við Úkraínu. Eina skilyrðið að félagið sé á almannaheillaskrá Skattsins.
Ég hef sagt það áður og ítreka hér að við þurfum að horfa á lífsgæði í stærra samhengi en hækkana á nafnvirði launa.
Stöðugleiki og lágir vextir eru stærsta hagsmunamál heimilanna og sameiginlegt verkefni okkar að viðhalda slíku umhverfi á Íslandi.
https://t.co/uohCzwJLC7
Innrás Rússlands í Úkraínu er árás á okkar gildi; virðingu fyrir alþjóðalögum, áherslu á frið og lýðræðislegar framfarir. Hörmulegt skeytingarleysi gagnvart öllu sem skapar grundvöll framfara og velsældar. Við eigum að taka fullan þátt í aðgerðum NATO og fordæma þessa framgöngu.
Þau sem vildu aflýsa skjölum í janúar 2021 þurftu í öllum tilfellum að skutlast með pappír. Ári síðar er 65% allra skjala aflýst rafrænt. Stórt skref undir forystu @andriheidar og félaga í Stafrænu Íslandi. Eitt dæmi af mörgum þar sem við getum einfaldað og bætt þjónustu.
Það er nauðsynlegt að þetta frumvarp komist í atkvæðagreiðslu. Í atkvæðagreiðslunni verður forvitnilegt að sjá hverjir kjósa með því og hverjir kjósa á móti
https://t.co/SqqcERiUuM
Þekkingin er fyrir hendi út um allt land og það eru aukin lífsgæði fólgin í því að geta sinnt draumastarfinu óháð því hvar viðkomandi býr. Svona eflum við byggðir landsins, gerum atvinnulífið fjölbreyttara og viðhöldum þekkingu og reynslu í heimabyggð.
Nýtt ráðuneyti þarf líka að taka mið af nýjustu tækni og þeim möguleikum sem í boði eru. Þess vegna munu nær öll störf sem auglýst verða í ráðuneytinu bjóða upp á það sem við þekkjum í daglegu tali sem störf án staðsetningar.
Það er fagnaðarefni að staðan undanfarna daga er talsvert betri en bjartsýnustu spár gerðu ráð fyrir.
Fyrir vikið breytast auðvitað forsendurnar fyrir hörðum sóttvarnartakmörkunum og tilefni er til að endurmeta stöðuna.
https://t.co/tz9g2LJcH4