Vegna flutninga gisti ég núna tímabundið hjá tengdarmóður minni. Í einhverjar 45 mín er ég búinn að leita út um allt af air-pods heyrnartólum. Fann þau loksins, inni á baði, þar sem tannþráðurinn er geymdur. #TengdóTekurTil
Skemmtilegt að vera á Spáni og fá þennan úrslitaleik beint í æð með heimamönnum. Spánverjar eru ekki landslið, þeir eru bara lið. Engin augljóslega bestur eða að bera liðið uppi, heldur liðsheild og leikstíll með bókstaflega kæfir andstæðinginn.
Verðskuldaðir heimsmeistarar. 🇪🇸
Hér er læknir sem vill láta taka sig alvarlega. Skrifar grein þar sem hann hálfbannar áfengisneyslu, styðst við "óformlega könnun" sem hann framkvæmdi auðvitað sjálfur. Mælir svo líka með hjálmi á djamminu!
Allt saman mjög yfirvegað og vísindalegt...
@BjarniHeimir Fabregas, Unai, Iraola væru mínir svona topp þrír. Xavi alveg spennandi líka.
Rosenior væri örugglega bara tímabundið fix, en menn eru sáttir með hann þarna hjá Blue Co í þessu Strassbourgh dæmi.
Ég hitti Age Hareide einu sinni – þegar hann settist óvænt við hliðina á mér á leik Víkings og Vals. Við áttum frábært spjall, um fótboltann og lífið sjálft. Age var sjarmerandi, fróður, hnyttinn og innilega áhugasamur um allt sem tengdist Íslandi.
Megi hann hvíla í friði.
Dóra ætlaði að bjóða sig fram til formanns Pírata en fékk ekki stuðning til þess og hætti við. Segir svo korteri síðar að hún færi sig yfir Samfylkinguna út af ,,pólitískri sannfæringu".
Þetta er einhver hraðasta hugmyndafræðilega vakning sem sést hefur...
Hvað hefðum við fengið af peningum að fara á HM?
Hvað með neyslu hér heima yfir HM?
Afhverju er miðaverðið svona hátt í Norður Ameríku?
Hvað kosta að falla í 1.deild á Íslandi?
Ónýt bikarkeppni hvað er til ráða?
Heilagt stríð Vísis gegn bjór á vellinum
Allir að byggja völl eða stækka
Heimildamyndir tengdar íþróttum ströggla
HSÍ ráða framkvæmdastjóra.
Og fleira með Birni Berg og Jóa Má
https://t.co/8H7NkyYj9U
Hinn eini sanni Eggert Magnússon birtir þessa mynd á gamla góða Facebook.
Þetta er frábær mynd af þeim Eggert Aroni og Jóa Berg, í henni kristallast hringrás fótboltans þar sem þeir eru núna samherjar í landsliðinu.
Fyrir þá sem ekki vita er Eggert Aron barnabarn Eggerts Magg.
Sendum þennan Jónas Sen bara á alla verstu tónleika/sýningar landsins. Bara svo við fáum meira af þessum flugbeittu, fyndnu og temmilega grumpy dómum hans.
Tilvitnun:
“…og kom ekki mikið betur út en hjá veislusöngvurum í áttræðisafmæli sem eru búnir að fá áminningu frá SÁÁ.”
😂
Lögin um veðmál á Íslandi eru dauður bókstafur – í gildi á pappír, en enginn fylgir þeim.
Samfélagið er í framtíðinni en lagaramminn fastur í fortíðinni.
Taparinn er Ríkið, sem missir skatttekjur sem gætu t.d. farið í forvarnir og úrræði fyrir þá sem þurfa á aðstoð að halda.
Þetta er sennilega með ótrúlegri viðtölum sem maður hefur séð, svona beint eftir leik.
Hrós á ��skar fyrir að halda coolinu og snúa vörn í sókn. Epic stöff. 👇