Á heimasíðu Stórmoskunnar á Íslandi kemur fram að gildi moskunnar séu þessi: „Samræður, umburðarlyndi, sambúð menningarheima, heiðarleiki, einlægni, gegnsæi og að vera góður og gildur samfélagsþegn.“
Allt virkar þetta auðvitað eins og örgustu þversagnir. Í flestum múslimaríkjum eru frjáls skoðanaskipti bönnuð (samræður), umburðarlyndi ekkert, tvöfeldni og lygar dyggðir sem Kóraninn upphefur og sá einn góður og gildur samfélagsþegn sem er í reynd barinn þræll klerkastéttarinnar.
En víkjum aðeins að því sem þarna segir um sambúð menningarheima.
Á Facebook-síðu sinni deilir Askur hinn illi (Karim Askari), formaður Stórmoskunnar, færslu sem fjallar um þá dásamlegu breytingu sem bíður Íslendinga þegar að því kemur að þeir „færi sig úr andrúmslofti kirkna og næturklúbba yfir í andrúmsloft moska og bænakalls“.
Þannig leggur hann að jöfnu siðspillandi skemmtanir næturklúbbanna og guðsþjónustur í kirkjum.
Hér skín í gegn andúðin og fyrirlitningin á kristinni kirkju sem skapaði menningu Evrópu. Og er vagga þess umburðarlyndis sem gerir honum sjálfum mögulegt að hreiðra hér um sig og svívirða trú okkar.
Í hans huga er munurinn á mosku og kristinni kirkju í reynd munurinn á himnaríki og helvíti, enda vita allir hvaða augum múslimar líta skemmtanahald Vesturlandabúa.
Veltum þess vegna þeirri spurningu fyrir okkur hvernig umburðarlyndi þessa manns verði háttað þegar múslimar verða orðnir hér 5-10% fyrst hann tjáir sig með þessum hætti um trúarlíf okkar meðan þeir eru bara um 1%. En eins og sakir standa eru múslimar hér rétt á pari við hvítasunnusöfnuðinn.
Askur hinn illi er frá Marokkó, þar sem íslam er ríkistrú og lög setja boðun annarra trúarbragða en íslamstrú verulegar skorður. Þar getur það varðað allt að þriggja ára fangelsi að reyna að fá múslima til að yfirgefa íslam.
Og þar yrði maður sem líkti mosku við skemmtanaklúbb líklega gerður höfðinu styttri áður en sól væri gengin til viðar.
Spunameistarar ríkisstjórnarinnar nota eitt elsta trixið í bókinni til að reyna að fegra ásýnd Kristrúnar Frostadóttur. Þeir vita að þegar stjórnmálamaður á í vanda gefst oft vel að gaslýsa fólk og tala um það hvað viðkomandi sé framúrskarandi.
Þannig gengur þetta fyrir sig með Kristrúnu, hún hefur ekki til að bera þá eiginleika sem fólk vill sjá í fari þjóðarleiðtogans og því grípa spunameistararnir til ýkjukenndra lýsinga á ágæti hennar.
Kristrún er frekar stirðbusaleg og taugaveikluð manneskja sem verður oft dálítið andstutt og flaumósa þegar hún fær erfiðar spurningar. Því hrífast fáir af henni þegar hún birtist í fjölmiðlum, enda hættir hún sér ekki í viðtöl til annarra en þeirra spyrla sem fara um hana silkihönskum.
Þetta vita spunameistararnir og þeir vita það líka að ekki er hægt að glamra lengur um að hún sé fær hagfræðingur og kænn stjórnmálaleiðtogi.
Eitt síendurtekið úrræði þeirra verður því að tala um afburðahæfni hennar til að tjá sig á enska tungu.
Þeir vita hvað pöpullinn er veikur fyrir öllu sem hefur á sér heimsborgarabrag. Þannig virkar íslenska minnimáttarkenndin.
Því er nú þrástagast á því hvílíkur tungumálagæðingur hún sé. Þegar hún mætti í hlaðvarpið The Rest is Politics fór allt á yfirsnúning. Þessu var lýst sem nánast sögulegum viðburði. Og nú í síðustu viku gerðist það síðan að hún skýtur upp kollinum á einhverri kapítalistaráðstefnu á vegum Arion-banka í London, og viti menn, enn fer kliður um áhorfendastúkuna á skeiðvelli engilsaxneskunnar.
Og við, almúginn hér heima, sem fáum ekki einu sinni að sjá eða heyra snilldina, eigum að hrífast með.
Af þessari fælnu en þungstígu meri.
Undanfarið eitt til tvö ár hafa okkur stundum borist fréttir af því að ungmenni sem dvelja á íslenskum meðferðarheimilum neyti þar fíkniefna.
Heyrst hefur að þetta sé raunin á Bjargey í Eyjafirði og Stuðlum í Reykjavík og í gær birtist frétt á DV um stúlku sem segist hafa verið í neyslu allan meðferðartímann á Klettabæ hér á höfuðborgarsvæðinu.
Samt er enginn stjórnandi kallaður til ábyrgðar vegna þessa.
Ég get sagt frá því sjálfur að sonur vinar míns fór á Vog vegna kannabisfíknar. Hann sagði að þar hefði allt flætt í eiturlyfjum.
Drengurinn sagðist prísa sig sælan að hafa sloppið þaðan út án þess að enda í harðari efnum og vondum félagsskap.
Stundum er erfitt að láta sér þykja vænt um þetta samfélag.
Það þarf ekki alltaf að leggjast í mikla rannsóknarvinnu til að komast að kjarna málsins hvað stjórnmálamenn varðar. Oft getur stutt tilsvar eða ræðubútur stjórnmálamanns sagt meira um viðkomandi en langar skýringar atvinnublaðrara eins og Friðjóns Friðjónssonar og Egils Helgasonar.
Tökum Kristrúnu Frostadóttur sem dæmi.
Fyrr á árinu birti Kristrún mynd af sér á samfélagsmiðlum með lúxusúr á úlnliðnum. Smartland birti myndina og upplýsti um að úrið væri af gerðinni Breitling og kostaði 1,6 milljónir króna hér á landi.
Kristrún var í kjölfarið spurð út í umfjöllunina í útvarpsþættinum Sprengisandi og hún svaraði: „Af einhverri ástæðu eru fleiri fréttir skrifaðar svona um mig en var til dæmis um formann Sjálfstæðisflokksins á sínum tíma þrátt fyrir að hann hafi eflaust átt flott úr og hafi alltaf verið vel til fara.“
Þetta barnalega svar segir okkur ýmislegt forvitnilegt um forsætisráðherrann. Til dæmis einmitt þetta: hún er barnaleg.
Hún er eins og hvimleiður krakki sem segir: „Ég má þetta af því hún Gugga í kjallaranum má það.“ Hver þolir krakkafrekjurnar sem tala svona?
Ekki sá sem þetta skrifar.
Það er svo líka eftirtektarvert að hún skuli bera sig saman við Bjarna Benediktsson í þessu samhengi. Gæti hún hreinlega hafa gleymt því að hún er formaður jafnaðarmannaflokks Íslands, en hann er leiðtogi kapítalistanna? Hún er í flokki sem berst gegn (eða þykist berjast gegn) forréttindastétt landsins og því horfir það töluvert öðruvísi við þegar hún skreytir sig með rándýrum lúxusvarningi heldur en ef um væri að ræða þann sem fór fyrir flokki hinna hugumstóru sem græða á daginn og grilla á kvöldin.
Hún veit ekki neitt og skilur ekki neitt. Líklega er hún og verður aldrei annað en frekar óspennandi forréttindapía úr Garðabæ.
Svo lýsir þetta svar hennar í Sprengisandi líka getuleysi hennar til að gæða svör sín þeim þokka sem oft eru einkenni framúrskarandi stjórnmálamanna. Ef Bjarni Benediktsson hefði verið spurður svona spurningar hefði hann vel getað gengist við því að vera skartmaður og þannig ættu menn að vera ef þeim byði svo við að horfa. Hann hefði komið mörgum til að brosa.
En sú list lærist henni Kristrúnu Frostadóttur seint.
Þeir eru miklu flottari á Vísi. Þar sér gervigreindin um að skrifa fréttirnar, og niðurstaðan er oft brosleg. Í þessari frétt er orðið „network“ þýtt sem „netverk“ á nokkrum stöðum: https://t.co/JRKziSCa2Q
Geri aðrir betur.
Og svo er þessi setning í fréttinni sem ætti nú að senda í næstu fegurðarsamkeppni: „Við erum andvíg trúarlegum netverkum sem, í skjóli trúar, ýta undir heimsmynd þar sem einstaklingar eru niðurlægðir eða útilokaðir vegna kynhneigðar, kynvitundar, lífsstíls eða persónulegra vala,“ sagði í yfirlýsingu frá stuðningsmannahópnum.
Kristrún Frostadóttir er óhemjuleiðinleg og óspennandi kona. Hún er vita húmorslaus og staglkennd bæði í tali og hugsun – og ofan í kaupið svo illa máli farin að það er raun að hlýða á hana lengur en eina til tvær mínútur í senn. Þá er ekkert að marka það sem Kristrún segir, enda hefur hún svikið öll sín kosningaloforð.
Samt er það svo að íslenskir vinstrimenn þola ekki að heyra Kristrúnu Frostadóttur hallmælt, og sjálfir gagnrýna þeir hana aldrei. Það má gagnrýna aðra Samfylkingarmenn eins og Jóhann Pál og Loga Einarsson, en ekki Kristrúnu.
Ástæða þessa er samt ekki sú að hrifning þeirra á Kristrúnu sé óstjórnleg, síður en svo. Þeir sjá vissulega það sem aðrir sjá og heyra það sem þeir aðrir heyra, en hún hefur leitt Samfylkinguna til valda og þegar öllu er á botninn hvolft telst það hinn endanlegi mælikvarði. Fyrst hún getur komist alla leið í forsætisráðuneytið, haldið Sjálfstæðisflokknum frá völdum og skattpínt sjávarútveginn þá skal hún ekki gagnrýnd.
Já, þeir fyrirgefa henni allt: álappaskapinn, heimskuna og fáfræðina, getuleysið í hagstjórninni, kosningasvikin sem eru fleiri en tölum verði talið og endalaus klúðrin á stjórnarheimilinu. Allt.
En engum skyldi þó blandast um það hugur (og allra síst Kristrúnu sjálfri) að daginn sem fylgi þjóðarinnar fyrrist flokkinn hennar þá munu flóðgáttir gagnrýninnar opnast. Og fólk mun skopast að henni. Síðan verður henni fleygt á haugana eins og hverju öðru skarni.
Þegar Eliza Reid var forsetafrú gat hún aldrei komið fram opinberlega án þess að vera með einhverja feminíska stæla og önnur slík leiðindi.
Jafnrétti! Valdefling! UN Women! og svo framvegis.
Eliza var óþreytandi að kunngera Íslendingum að hún væri metnaðarfull og ákveðin kona. Hún ætti sig sjálf og væri ekki á Bessastöðum upp á punt. Og svo mikið var víst að færi einhver á mis við þennan boðskap forsetafrúarinnar þá var alltaf næsta kvenleiðtogaráðstefna eða næsta viðtal til að minna fólk á.
En síðan gerist það dag einn að þessi ötuli boðberi hinnar kvenlegu valdeflingar bregður sér í heimsókn í moskuna við Skógarhlíð.
Og viti menn! Hún er komin með slæðu!
Já, slæðu hvorki meira né minna. Þennan höfuðklút sem margar kynsystur hennar á Vesturlöndum þora ekki annað en bera af ótta við hótanir, útskúfun eða ofbeldi af hendi eiginmanna sinna og bræðra. Í Íran og víðar hafa konur jafnvel verið fangelsaðar, hýddar og stundum drepnar fyrir að virða ekki slæðuskylduna.
En Eliza pælir ekki mikið í slíku og sveipar sig umsvifalaust þessu tákni kvenkúgunarinnar til að gera gestgjöfunum til geðs.
Að samsætinu loknu stígur svo þessi kraftmikla kjarnakona aftur út í íslensku jafnréttisgjóluna, og heldur áfram að berjast gegn drottnunargirni vestrænna karlmanna.
Oj barasta! Hvílík botnlaus hræsni og lágkúra!
Gauti B. Eggertsson er þegar grannt er skoðað eins konar filterslaus Dagur B. Eggertsson.
Í gegnum hann heyrum við innri rödd Dags.
Þetta er Dagur mínus yfirsjálfið.
Gauti kemur fram og segir það sem Dagur vill segja en getur ekki sagt stöðu sinnar vegna.
Þann 28. júní 2023 brenndi Salwan Momika eintak af Kóraninum fyrir utan mosku í Stokkhólmi til að mótmæla íslam, sem hann taldi ógna lýðræði og tjáningarfrelsi.
Í kjölfarið sendi Muslim World League frá sér harðorða yfirlýsingu þar sem athæfið var fordæmt og kallað „glæpur“. Muslim World League eru alþjóðleg íslömsk samtök með höfuðstöðvar í Mekka í Sádi-Arabíu. Samtökin hafa sögulega haft náin tengsl við sádiarabísk stjórnvöld og gegnt mikilvægu hlutverki í útbreiðslu wahhabisma, sem einkennist af íslamskri bókstafstrú og telst stórvarasamt fyrirbæri á evrópskan mælikvarða.
(Rétt er að taka fram að Kóranbrennan var ekki glæpur samkvæmt sænskum lögum, heldur stjórnarskrárvarin tjáning.)
Karim Askari, leiðtogi Stórmoskunnar á Íslandi, birti yfirlýsingu Muslim World League á Facebook-síðu sinni. Eitt atriði í yfirlýsingunni vekur einkum athygli. Þar er sérstaklega gagnrýnt að Kóranbrennan hafi farið fram „undir vernd lögreglunnar“.
Lögreglan var þarna til að koma í veg fyrir ofbeldi og tryggja að Salwan Momika gæti nýtt sér stjórnarskrárvarinn rétt sinn til að mótmæla. Öryggisviðbúnaður var mikill enda ríkti töluverð spenna meðal þeirra 200 manna sem þarna höfðu safnast saman. Einn úr hópnum hugðist stórslasa Salwan Momika með grjótkasti, en lögreglan náði að koma í veg fyrir að honum tækist það. Sá sneri svo aftur, kastaði steini í átt að Momika og var þá handtekinn.
Mótmælin eru kölluð glæpur í yfirlýsingunni sem Muslim World League birti og Karim Askari endurbirti. Þar er einnig talið ámælisvert að lögreglan skyldi hafa varið mótmælandann (og líklega komið í veg fyrir að hann væri drepinn af trylltum lýðnum).
Já, ekki er það geðslegt.
Og Karim Askari reynir að telja Íslendingum trú um að hann virði íslensk lög og að sjaríadómarinn Usmani sem hingað kom hafi bara verið ferðamaður sem ruglaðist á Stórmoskunni við Skógarhlíð og Geysi í Haukadal.
Ekki er nú sannleiksástin að skaða þennan mann, hvað þá virðing fyrir landslögum norrænna ríkja svo sem sést af yfirlýsingunni sem hann endurbirti.
Og já, þess má svo geta að þann 29. janúar 2025 var Salwan Momika skotinn til bana í Svíþjóð. Sænska lögreglan telur sig hafa borið kennsl á morðingjann, sýrlenskan mann sem grunaður er um að hafa fylgst lengi með Salwan og setið fyrir honum. Sá mun enn vera eftirlýstur.
Þetta væl í Þorgerði og hennar fólki er aumkunarvert. Hvað hafa ekki umdeildir stjórnmálamenn á Íslandi mátt þola? Eru menn búnir að gleyma því hvernig hefur verið talað um Bjarna Ben, Sigmund Davíð og Snorra Másson?
Þann 29. ágúst sl., daginn sem kosið var um hvort Ísland skyldi hefja aftur aðildarviðræður við Evrópusambandið, birtist upplýsingaefni á Facebook-síðu Stórmoskunnar við Skógarhlíð. Textinn var á ensku, íslensku og arabísku. Þar kom fram að þátttaka í kosningunni væri „þjóðleg skylda“, þótt engin lagaleg skylda sé til kosningaþátttöku á Íslandi.
Formaður Stofnunar múslima á Íslandi, Karim Askari, deildi síðan upplýsingaefninu á persónulegri Facebook-síðu sinni og bætti svo um betur og birti seinna sama dag ljósmynd úr kjörklefa af kjörseðli sínum þar sem mátti sjá að hann ætlaði að greiða atkvæði með aðildarviðræðum. Þessi myndbirting var í andstöðu við skýrar leiðbeiningar landskjörstjórnar, sem hafði hvatt kjósendur til að birta ekki myndir af útfylltum kjörseðlum því slík birting ryfi leynd kosninga.
Hér er um að ræða alvarlegra mál en margan gæti grunað og óhugnanlega vísbendingu um það sem síðar mun verða hér á landi.
Trúarleiðtogi í mosku veitir safnaðarmeðlimunum leiðsögn um hvernig þeim beri að lifa lífinu í samræmi við vilja Allah. Þegar hann tekur pólitíska afstöðu vegur það þungt. Hann þarf ekki að segja „Allah vill að þið kjósið svona“, heldur er nægilegt að gefa í skyn tiltekna pólitíska afstöðu til að sumir fari að líta á hana ýmist sem föðurlega ábendingu eða trúarlega skyldu.
Þetta er ekki bara tilgáta. Rannsóknir hafa sýnt að pólitísk afstaða múslimskra trúarleiðtoga getur haft áhrif á kosningahegðun safnaðarmeðlima.
Nú skulum við skyggnast ögn inn í framtíðina.
Hálfur annar áratugur er liðinn. Söfnuður Askaris í Skógarhlíðinni, líkt og söfnuðir annarra múslima hér á landi, hefur stækkað ár frá ári og pólitískur áhrifamáttur hans stóraukist.
Samfylkingin, Viðreisn og aðrir vinstriflokkar kosta kapps um að fá atkvæði þessa fólks.
Og uppboðið er í fullum gangi.
Hver þeirra býður best? Hver er viljugastur til að aðlaga íslenskt samfélag enn frekar að trúarlegum þörfum múslimanna?
Í Evrópu er þetta nú þegar árið 2026 orðið gríðarstórt vandamál. Í Svíþjóð og á Bretlandseyjum og í fleiri löndum eru frambjóðendur vinstriflokka meira að segja farnir að auglýsa á arabísku.
Nei, framtíð okkar er ekki björt, kæru vinir. Það er vandséð hvernig hægt verði að sporna gegn þessari þróun, sérstaklega þar sem viljinn til þess meðal þorra þjóðarinnar virðist sáralítill.
Þeir fáu sem hafa sig í frammi og reyna að vara við uppgangi íslam eru úthrópaðir sem mannhatarar.
Á Íslandi er framtíð lýðræðisins í hættu.
Í síðustu viku ræddi Oddur Ævar Gunnarsson, „fréttmaður“ á Vísi, við Karim Askari, formann Stofnunar múslima á Íslandi, um komu sjaríadómarans Muhammad Taqi Usmani í moskuna við Skógarhlíð.
Ég hafði aldrei séð þennan Askari áður, en við lestur viðtalsins vaknaði forvitni mín. Það var eitthvað svo sláandi hvað maðurinn var kaldur í svörum. Það vottaði til dæmis ekki fyrir skilningi á því að Íslendingum gæti staðið ógn af boðskap manns sem hefur talað fyrir grýtingum og öðrum grimmilegum refsingum.
Sjaríadómarann sagði hann hafa verið ferðamann sem leit við í moskunni, og að míkrafónninn hefði óðar verið tekinn af honum ef í máli hans hefði farið að gæta einhverra öfga, enda fylgdu þau í moskunni íslenskum lögum. Það sem Usmani boðaði væri hins vegar „leyft í hans landi“.
Fréttamaðurinn Oddur Ævar var náttúrlega ekkert nema sleikjuskapurinn líkt og fréttamanna er háttur gagnvart múslimum. Hann hefði vel getað spurt formanninn: Hvað finnst þér sjálfum um það sem sjaríadómarinn hefur boðað? Finnst þér það eðlilegt? Er eitthvað í boðskap hans sem þú fordæmir afdráttarlaust? En því miður voru engar áleitnar spurningar bornar fram og viðtalið var þannig séð einskis virði.
Já, allt var þetta kunnuglegt – og ómerkilegt. En eins og ég sagði vakti kaldraninn í Askari áhuga minn svo ég fór að grúska aðeins.
Ekkert bitastætt fannst þó um hann á netinu svo ég kíkti á Facebook.
Á síðu moskunnar var myndbandið frá heimsókn sjaríadómarans ásamt auglýsingum um fyrirlesturinn enn aðgengilegt. Og engir fyrirvarar voru þar gerðir við þær öfgaskoðanir sem hann aðhyllist.
Helgin var gengin í garð og ég hugðist verja henni í eitthvað uppbyggilegra, en mér rann blóðið til skyldunnar að skoða kauða betur. Ég fór því inn á Facebook-síðuna hans.
Og boy, oh boy.
Þarna var ýmislegt áhugavert sem ég mun fjalla um síðar.
En eitt af því sem vakti athygli mína var viðtal við hann í arabísku blaði sem hann hafði birt skjáskot af á Facebook.
Ég kann vitaskuld ekki arabísku svo ég kallaði gervigreindina til og bað um þýðingu.
Mest var þetta hefðbundið spjall um líf múslima á Íslandi, og ég var við það að missa áhugann þegar ég rak augun í nokkuð sem mér þótti ansi kynlegt.
Hann fór að ræða fyrstu kynni Íslendinga af íslam og sagði, samkvæmt þýðingu sem ég lét fleiri en eina gervigreind yfirfara:
„Íslenska samfélagið kynntist íslam og múslimum árið 1627, þegar hinn frægi múslimski sjóræningi kom til suðurhluta Íslands. Hann drap hér nokkra landsmenn og rændi 214 manns, sem hann flutti til Norður-Afríku, samkvæmt íslenskum frásögnum.“
Já, þið lásuð rétt.
Tyrkjaránið. Árið 1627. Nokkrir drepnir. Og talan 214.
Ég stoppaði.
Hvað var maðurinn eiginlega að segja?
Hann er að tengja einhverja verstu böðla Íslandssögunnar, manndrápara og þrælahaldara, við trú sína.
Þessi maður, sem hefur ekki skrifað einn staf um íslenska sögu og menningu á Facebook, er með ártal Tyrkjaránsins á hreinu og meira að segja tölu yfir þá sem voru hnepptir í þrældóm. Reyndar voru um 400 manns numdir á brott í Tyrkjaráninu árið 1627 í heild. Og á fimmta tug landsmanna voru drepnir.
En það eru ekki tölurnar sem hér skipta mestu máli, heldur framsetningin.
Hann lýsir Tyrkjaráninu sem fyrstu kynnum Íslendinga af íslam. Vopnaðir ræningjar koma hingað, myrða fólk og flytja hundruð manna í þrældóm. Og hann talar um hinn „fræga“ sjóræningja.
Það dylst ekki að hér kveður við einhvern andstyggilegan velþóknunartón. Ekkert í þessari frásögn gefur til kynna að honum þyki þetta óeðlileg eða neikvæð birtingarmynd trúarinnar. Þvert á móti er nánast eins og hann sé að rifja upp merkan áfanga í sögu hennar.
Og takið eftir einu: Hann er ekki að segja að þetta hafi verið fyrstu kynni Íslendinga af tyrkneskum eða norðurafrískum ræningjum. Hann er að segja að þetta hafi verið fyrstu kynni Íslendinga af trú þeirra. Íslam.
Hann kýs sjálfur að tengja trú sína við mannránin og þrældóminn, án þess að nokkur fordæming á voðaverkunum komi fram.
Eftir voðaverkin sem Tyrkjaráninu fylgdu var hér alsiða að prestar lykju predikunum sínum á þann hátt að biðja almættið að vernda þjóðina fyrir hundtyrkjanum. Þær bænir dugðu þjóðinni vel í fjögur hundruð ár. En nú er búið að afkristna þessa þjóð og biskupinn okkar talar af hlýhug um hermenn íslams. Enda eru þeir komnir aftur og verða áreiðanlega stórtækari en síðast.
Myndbirtingin með þessari frétt er mikill klaufaskapur. Mynd með svona frétt á að styrkja umfjöllun blaðamannsins en ekki gefa pólitískum andstæðingum kost á því að drepa málinu á dreif. Þetta sama gerðist þegar Elliði Vignisson skrifaði um mótmælin í Frakklandi og birti gamla mynd sem var tekin í Svíþjóð. Og nú gerist það aftur þegar Morgunblaðið fjallar um lélega atvinnuþáttöku erlends fólks á Íslandi og það er birt mynd af konu sem þó fjandakornið hefur vinnu (og er víst að læra íslensku í þokkabót) og þannig dvínar stórlega slagkraftur umfjöllunarinnar. Af hverju að gefa slíkan höggstað á sér?!
Það er farið að angra mig sífellt meir að ráðherrar ríkisstjórnarinnar og fleiri fyrirmenni í samfélaginu sniðgangi þáttinn Spursmál sem Stefán Einar Stefánsson stýrir og fari aðeins í viðtöl hjá þeim fjölmiðlamönnum sem eru hvorki jafn vel upplýstir og Stefán né krefjandi í spurningum sínum.
Þetta er einfaldlega slæmt fyrir lýðræðið.
Kjörnir fulltrúar fara með vald í umboði almennings og verða að sæta aðhaldi. Hlutverk fjölmiðla er að spyrja þeirra spurninga sem fólk vill fá svör við, ella er hætt við að fólki geti reynst erfitt að mynda sér upplýsta og sjálfstæða afstöðu. Þá eru gagnrýnar spurningar og andstæð sjónarmið ráðamönnum ekki síður nauðsyn, þannig má láta reyna á hugmyndir þeirra og ákvarðanir og afhjúpa veikleikana sem þar leynast ef einhverjir eru. Það þekkir hver maður að stundum verðum við að vera þess umkomin að endurskoða eigin sannfæringu.
Lýðræði snýst ekki bara um réttinn til að kjósa á fjögurra ára fresti. Til að lýðræðið virki verða þeir sem fara með völdin að sæta raunverulegu aðhaldi.
Sama fólkið og sniðgengur þátt Stefáns Einars er síðan sítalandi um baráttuna gegn upplýsingaóreiðu og gefur sig á tyllidögum út fyrir að hafa áhyggjur af stöðu fjölmiðla. Það skýtur óneitanlega skökku við að hafa uppi stór orð um vandann á fjölmiðlamarkaði en neita svo að mæta í einn þeirra sárafáu umræðuþátta hér á landi sem ná til hins breiða fjölda.
Hvernig eiga fjölmiðlar að treysta stoðir sínar og vaxa á tímum samfélagsmiðla ef þeir geta ekki kallað til það fólk sem áhorfendur vilja helst sjá standa fyrir máli sínu?
Og hvað með jafnræðið? Ég sé að ráðherrar mæta í viðtöl hjá fjölmiðlakonunni geðþekku og efnilegu Elísabetu Ingu á Vísi. Hún hefur tekið viðtöl við Kristrúnu Frostadóttur, Þorgerði Katrínu, Loga Einarsson og Daða Má Kristófersson og gert það með miklum sóma, en er ekki hætta á að samkeppnisstaða fjölmiðla skekkist ef ráðherrar mæta hjá einum miðli en sniðganga annan? Og af hverju heyrist ekkert í Blaðamannafélaginu vegna þessa?
Svo finnst mér líka merkilegt hversu lítinn stuðning Stefán Einar hefur fengið frá öðrum fjölmiðlamönnum. Vissulega hafa einhverjir tæpt á sniðgöngunni við valdsherrana, en það virðist iðullega gert nánast bara fyrir siðasakir. Í öðrum löndum þekkist vel að fjölmiðlamenn taki einarðlega upp hanskann fyrir kollega sína í sambærilegum aðstæðum. Þetta snýst ekki um að fólk þurfi að fella sig við Stefán Einar, heldur um grundvallarhlutverk fjölmiðla í lýðræðissamfélagi.
Haley Stevens, þingkona Demókrataflokksins í Michigan-fylki í USA, dró stuðning sinn við Abdul El-Sayed, frambjóðanda flokksins til öldungardeildar Bandaríkjaþings, til baka á lokametrum kosningabaráttunnar þar vestra og lýsti þess í stað yfir stuðningi við mótframbjóðanda hans, Repúblikanann Mike Rogers. Ástæðan var meðal annars sú að El-Sayed hafði ekki viljað fordæma auglýsingamyndband sem gert var af samtökum sem studdu framboð hans. Í myndbandinu var látið líta svo út að stuðningur Bandaríkjanna við Ísrael ylli því að amerískar fjölskyldur gætu ekki keypt nauðþurftir í súpermörkuðum, og þetta taldi Haley ýta undir gyðingahatur. Ég tel viðbrögð hennar fullkomlega skiljanleg, ekki síst í ljósi þess hversu alvarlegt vandamál gyðingahatur er orðið í bandarísku þjóðlífi, einkum meðal stuðningsmanna og frambjóðenda Demókrataflokksins.
Auglýsingin var þó aðeins dropinn sem fyllti mælinn fyrir Haley. El-Sayed hafði áður sætt harðri gagnrýni fyrir viðbrögð sín við hryðjuverkaárás á samkunduhús gyðinga í Michigan, þar sem árásarmaðurinn, sem misst hafði ættingja í loftárás Ísraela á Líbanon, beindi hefnd sinni gegn söfnuði samkunduhússins. El-Sayed tengdi árásina við vítahring ofbeldis í Mið-Austurlöndum og sagði að „sært fólk særi aðra“ (hurt people hurt people), sem þótti gefa í skyn réttlætingu á hryðjuverkinu. Þá hafði hann haldið kosningafundi með Hasan Piker, umdeildum áhrifavaldi sem meðal annars hafði sagt að Hamas væri þúsund sinnum betra en Ísrael og gert lítið úr ásökunum um kynferðisofbeldi Hamas-liða í árásinni 7. október 2023. Haley Stevens hafði þegar gagnrýnt tengsl El-Sayed við Piker. Ákvörðun hennar átti sér þannig forsögu.
Fréttamaðurinn Elvar Þór Árnason á Vísi fjallar í gær um sigur El-Sayeds í kosningunum og í fyrirsögn fréttarinnar segir: „Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum.“
Það er verulega gagnrýnivert að blaðamaður Vísis skuli leyfa sér að fullyrða í fyrirsögn að Haley Stevens hafi gert sig seka um „svik“ með því að draga stuðning sinn við Abdul El-Sayed til baka. Með því er hann ekki aðeins að greina frá atburðum heldur fella siðferðilegan dóm um ákvörðun hennar.
Í fréttinni segir einnig að Haley hafi snúið baki við El-Sayed og að flokksmenn Demókrata hafi gagnrýnt ákvörðun hennar harðlega. Hins vegar er ekki útskýrt hvers vegna hún tók þessa ákvörðun.
Er engin ritstjórn á Vísi? Hvað varð um hlutlæga og vandaða fréttamennsku á Íslandi?
Það hefur vakið athygli mína að íslenskir fjölmiðlar, sem jafnan eru ötulir við að fjalla um fordóma og mismunun gagnvart ýmsum minnihlutahópum í Bandaríkjunum (sbr. BLM-hreyfinguna, transfólk og fleira), þegja þunnu hljóði um það vaxandi gyðingahatur sem farið er að gera vart við sig í landi hinna frjálsu og hugrökku, eins og sýnir sig berlega í umfjöllun um kosningabaráttu El-Sayeds. Sú spurning hlýtur því að vakna hvort þetta tvöfalda siðgæði kunni að endurspegla undirliggjandi fordóma gagnvart gyðingum meðal íslenskra fjölmiðlamanna.
Með þessu ætti fólk að fylgjast og láta í sér heyra hvenær sem ósómans verður vart.
Gúmmítöffarinn í leðurjakkanum hefur líklega setið á húddinu á kádiljálkinum sínum með þumalinn í buxnastrengnum og rettu í munnvikinu þegar hann skrifaði þetta. En samt hljómar hann – og ekki í fyrsta sinn – eins og femínistastelpa í Viðreisn.
Hér á X-inu og víðar ríkir mikil reiði vegna þeirrar hroðalegu pólitísku hlutdrægni sem ríkir á RÚV og það er svo sannarlega ærin ástæða til að reiðast. Þó ætti misnotkun óvandaðra manna á ríkismiðlinum ekki að koma neinum á óvart: Það er eðli þeirra sem virða að vettugi heiðarleika og sanngirni að traðka á rétti samborgara sinna og við þetta megum við búa hvern einasta dag. Enda er flestallt almennilegt fólk hætt að hlusta á miðilinn og finnst það ganga glæpaverki næst að það sjálft skuli vera neytt til að fjármagna ósómann.
Einu varnirnar sem við enn höfum varðandi RÚV eru þau lög sem þar gilda um að hlutleysis skuli gætt og öll sjónarmið heyrast, og það er að sönnu dapurlegt að fulltrúar okkar á þingi hafi kosið að láta eins og þessi lög séu ekki til.
Hvar ertu, Miðflokkur?!