@binniglee Það er eins og fólk fatti ekki að það að niðurlægja fólk sé ekki lausnin. Ég skil stundum ekkert 🙃 Þú mátt vera þú og gera þitt og það á ekki að koma neinum við. ❤️
Gah!!! Kæru mæður, feður, frænkur, frændur, systur, bræður vinkonur, vinir og þið öll hin í samfélaginu. Tökum nú hausinn útúr rassgatinu á næsta manni og hugsum meira um okkar eigins ✌🏼 Útlit annara kemur þér ekki við - svo einfalt !
@steinunnnn Eða bara að það kemur engum við hvernig líkamar annars fólks eru í holdum? Það má öllum þykja vænt um líkamann sinn sama hvernig hann kann að vera í laginu 💕
@majarokk @HuldaBWaage1 Man má líka alveg langa til þess að grennast, engin að setja bann við því. Ádeilan er á að það fá ekki allir líkamar sömu virðingu vegna holdarfars og þannig á það ekki að vera 🙌🏻
Það er ekki tilgangur jákvæðrar líkamsímyndar að fólk eigi að skammast sín fyrir að grennast eða að líkami þeirra breytist. Þetta snýst um það að þykja vænt um líkamann sinn sama í hvaða formi hann er, var eða verður❤️ já og svo að allir líkamar fái sömu virðingu 💕✌🏼
Það má alveg grennast og vera stolt/ur af því EN um leið og við tölum á neikvæðan hátt um líkamann fyrir þær breytingar erum við komin inn á slóðir fitufordóma. 🙃