@SiggiOrr @kirsuberjabaka Nááákvæmlega. Það er kaffi á Suðureyri. Í heita pottinum. Ekki hægt að toppa það. Það er ekki hægt. ☕ Ekkert eðlilega elegant.
Það er eitthvað óskiljanlegt og óraunverulegt að heyra að Eiríkur Guðmundsson sé látinn. Ég er einlægur aðdáandi skrifa hans. Þá var hann einn af fáum sem skildi útvarpið - virkilega fattaði það og það skilaði sér alla leið. Ljóðrænan - nálægðin. Farvel og takk fyrir mig 🧡
@elisabetyr203 Ok kannski smá TMI hjá mér en ég fékk svakalega oft svona stingi á meðgöngu og það var vegna vöðvabólgu í leggöngunum 🙈 það er semsagt til og kemur þegar kona er stressuð og er ómeðvitað alltaf að spenna, hliðstætt axlarspennu. Gæti það átt við um þig? Þetta er voðalega sárt. 💔
@barajohannes Ég styð þig. Læknirinn minn sagði í morgun að okkar jafnaldrar væru á hátindi óhamingjunnar skv. mælingum. Nóg af tilefnum. Um að gera að gúlpa bara nógu mikið af fínu víni þar til þetta líður hjá.
@elisabetyr203 Svo sammála. Það voru strangar æfingabúðir hjá liðunum eftir skóla í nokkrar vikur fram að öskudegi á Ak og miklar bollaleggingar um lagaval. Á svo góðar minningar frá þessum degi. Eftir herlegheitin var hist heima hjá mér og borðað pizzu og maulað á namminu sem við unnum fyrir.
Vodafone hefur opnað fyrir gjaldfrjáls símtöl frá Íslandi til Úkraínu sem venjulega eru mjög dýr 🙏 Ég skora á @siminn, @hringdu og @nova_island að gera slíkt hið sama og auðvelda þar með fólki hér á landi að hafa samband við ástvini sína í stríði eða á flótta. Koma svo! 💙💛
Kona er orðlaus yfir þessu liði. Það býr yfir ótrúlegum karakter, andlegum styrk og ÞVÍLÍKRI seiglu. Pælið í öllum þessum áföllum?! Liðið sýndi hvað íþróttin getur verið falleg. Takk fyrir að bjarga janúar. TAKK! Og djöfull hlakka ég til næst! #emruv
@danielmagg77 Veiran sá þarna pjúra pótensíal og gleði og hugsaði að þetta gengi nú ekki. Ekki á hennar vakt. "Skrúfum aðeins niður í þessu". 💀☠💀 Vill hún ekki bara taka Sigvalda líka? Og hunda? Og ís?