"Börnin mín eiga tvær mömmur og fyrir þau skiptir máli að sjá regnbogafánanum flaggað."
-Skiptir þá engu fyrir barnið mitt, sem er með Downs, að sjá þeirra fána flaggað?
Hvers vegna skipta þín börn meira máli en þau?
"Í dag, 17. maí, er alþjóðlegur dagur gegn fordómum í garð hinsegin fólks. Í mínum huga hefur þörfin á því að tala hátt og skýrt með mannréttindum aldrei verið meiri."
-Nú? Eru börnin þín þau einu sem eiga tvær mömmur á þessu ári á Íslandi af því að öll hin voru drepin í móðurkviði fyrir það eitt að vera eins og þau eru?
"Vangaveltur kjörinna fulltrúa eru nefnilega miklu meira en bara vangaveltur.
Þær eru rifa á hurð sem hleypir flóðbylgju haturs í gegnum dyrnar. Það þarf ekki annað en að skoða athugasemdir á samfélagsmiðlum til að það blasi við. Ég fékk til að mynda að heyra fyrr í vikunni að það ætti að „myrða alla þessa kynvillinga” undir myndbandi sem ég deildi frá fyrrnefndu regnbogahlaupi."
-Sá aðili er einn um þessa sturluðu skoðun eða í það minnsta tölfræðilega 0 prósent.
Þú ert persónulega hlynnt því að börnum eins og mínum sé eytt í móðurkviði, jafnvel þó svo að fólk hafi ætlað að eignast það áður en það komst að því að um Down heilkenni var að ræða. Þín pólitík bókstaflega leyfir kerfisbundna útrýmingu á þeim sem eru eins og mitt barn.
https://t.co/BhdKehCPdn
"I am a man with Downs syndrome, and my life is worth living"
Þetta er Frank Stephens.
Hann hefur setið fyrir framan bandaríska þingið, komið í þáttinn hjá Piers Morgan og margt, margt fleira.
Hér er brot úr ræðu hans þar sem hann reynir að sannfæra bandaríska þingið að líf hans sé ekkert minna verðmætt en annarra
Öll ræðan hans:
https://t.co/8HONw5cdeW
"Það elska allir börn með Downs en enginn vill eignast þau"
Þetta sagði einn af mínum nýjustu Facebook vinum, sem sjálfur á barn með Downs og þessi orð settu þessi ummæli sem Hörður Torfa lét falla í ákveðið samhengi.
Þetta sýnir líka fáviskuna og... ég veit ekki, hroka eða ignorance á málefninu.
Enn og aftur er tilgangurinn ekki að etja þessum hópum saman heldur til að sýna að það er -EKKI- tilveruréttur sem þetta fólk er að berjast fyrir.
Upphafsorðin segja stóra sögu þegar Hörður segir að "langflestir sýni fólki með Downs mjög jákvætt og hlýtt viðmót", en staðreyndir segja einfaldlega allt annað. Staðreyndirnar segja að uþb -1- barn með Downs fæðist á hverju ári á öllu landinu, hinum er eytt í móðurkviði.
Ég ætla ekki að setja þetta í samhengi við fóstureyðingar almennt, heldur í samhengi við að þetta gerir fólk sem ætlaði sér að eignast barn þar til heilkennið uppgötvaðist.
Ég átti samtal um þetta við manneskju sem er nokkuð nákomin mér og hún verður bara að vera fúl þó ég segi hérna frá því, en hún hélt því fram að það væri skiljanlegt og hún styddi ákvarðanir fólks til að eyða barni -sem það ætlaði annars að eignast- ef í ljós kemur að barnið er með Downs heilkenni.
Verandi sá frekar leiðinlegi gaur sem ég er þá langaði mig að leiða hana í smá gildru og vitnaði í myndband frá hinum "virta" barnaspítala í Boston, sem hélt því fram í myndbandi (sem síðar var eytt en ég á auðvitað myndbandið) að börn vissu strax í móðurkviði ef þau væru trans.
Ég spurði manneskjuna hvort hún myndi styðja að foreldrar myndu eyða barni -sem þau ætluðu annars að eignast- ef í ljós kæmi að barnið væri trans og svarið lét auðvitað ekki á sér standa og henni fannst það GALIN hugmynd sem væri mjög transfóbísk og hvernig mér dytti eiginlega í hug að spyrja að þessu.
Það tók hana smástund að átta sig á tvískinnungnum í svari sínu en þegar hún gerði það þá var farið í persónuárásir um hversu ósanngjarn ég væri undir eins.....
Ég hef sett þessa gildru fyrir fleiri og niðurstaðan er sú sama, með einni undantekningu, en það var kona sem sagði að hún styddi fóstureyðingar alveg sama hver ástæðan væri og vék ekki frá þeirri sannfæringu sinni á nokkurn hátt.
En þetta endurspeglar allt saman ummæli Harðar hér fyrir neðan og sýnir að fólk hugsar slík rök sjaldnast til enda.
Það segir bara víst heilmikið um hvort þú ert velkominn eða ekki þegar þú færð ekki einu sinni að koma í heiminn fyrir það eitt að vera eins og þú ert, jafnvel hjá fólki sem ætlaði að eignast barnið, þar til í ljós kom að það var með Downs.....
Og að "tilveruréttur" allra er ekki það sem er í forgangi hjá fólki eins og Herði.
Ég benti oddvita VG á skemmtilega staðreynd, en hún sakar stjórnmálaflokka um kynjamismunun og hneykslast.
Gortar sig af kynjamismuninum eigin flokks því hún er rétt tegund af mismunun.
Hún gagnrýnir þarna að einungis 22% kvenna séu í odvvitasætum en montar sig af því að vera bara með 12,5% karla í oddvitasæti.
Svo kallar hún það kvenfyrirlitningu að benda á skekkjuna... og hendir í blokk.
Fattar svo ekkert af hverju þau fengu 14 atkvæði í seinustu kosningum.
ALDRE gleyma því að þegar fólk eins og Rósa tala um jafnrétti, þá er ÞETTA jafnréttið sem þau vilja.
ég er á andlegu og hugmyndafræðilegu leveli mótfallinn því sem þessi fáni stendur fyrir, sem er meðal annars óafturkræfar hormónameðferðir á börnum. ert þú hrifinn af slíku?
svo er einnig óeðlilegt að fána sem hampar sumum hópum fram yfir aðra sé flaggað fyrir utan ríkisstofnanir. þar ætti einungis íslenski fáninn að vera, það er fáni sem stendur fyrir alla íslensku þjóðina. þessi CE líking er merki um andlegan sjúkdóm hjá manninum sem skrifar þessa athugasemd
Ég finn ég er orðin pirruð á þessu tiptoing í kringum hvað er að gerast.. meðan vinstrinu er leyft að rústa samfélaginu þá er mótastaðan mest að útskýra gegn vinstrinu að við hin sjáum í gegnum þau.. og að mótstaðan sé ekki gaslighted eins og almenningur. Þú platar ekki mig og telling them off gerir ekki shit gegn svona ofurvaldi 💔 Allir flokkar landsins.. allir valdamenn landsins.. gegn nokkrum á X. Eh hefur áunnist en þetta er allir flokkar gegn einum. 💔 ESB komið djúpt.
@NordicMasc Það er algengur brandari sem ég hef heyrt frá konum, "er þetta stelpa eða fóstureyðing?" Það er erfitt að ræða við fólk sem ber enga virðingu fyrir lífi og þau gera sér grein fyrir að þetta er jú líf, þaðan kemur sjokkið.
Ég gerði status um að ég myndi ekki þora að setja son minn, sem er með Downs, í íslenskan skóla vegna þess að þar væri enginn fáni.
Ég hélt að þetta væri augljós ádeila á fána geðveikina sem hefur dunið yfir okkur upp á síðkastið og fannst þess vegna tilvalið að nota nákvæmlega sömu rök og "ákveðnir aðilar" hafa stuðst við.
Auðvitað geri ég mér fulla grein fyrir að enginn hatar hann og ég ætla að fullyrða að líklega er enginn hópur almennt meira elskaður af samfélaginu sem heild en fólk með Downs, sérstaklega börnin..... Alveg eins og ekki nokkur maður hatar nokkur börn almennt!
En sumir gengu í gildruna, eins og sjá má í þræðinum og ætlaði varla að trúa því þegar nokkrir aðilar mættu hérna til að segja mér hvað það væri algjörlega fáránlegt af mér að halda því fram að það að hafa fána segði eitthvað til um hvort sonur minn væri hataður eða ekki.
Sama fólk varð einnig gífurlega reitt og sárt þegar ég gerði þeim upp hatur í hans garð við það eitt að réttilega setja út á þau ömurlegu rök sem ég lagði fram, máli mínu til stuðnings.
Ég vona að það sé einhver lexía þarna....