Ég hef fengið mig fullsaddan af Haraldi og er því farinn í hefndarför. Ég veit ekki hversu fær ég er um að tísta á meðan förinni stendur, en ég vona að allt fari vel. Bless í bili kæru vinir! ❤️😥🥰
Ég hef komist að því að Haraldur kong hafi skipað frændum sínum Sigtryggi og Hallvarði að gera skip mitt upptækt. Ég vona að Þorgils og menn mínir séu heilir á húfi.
Er með Faravið að herja í Kirjálalandi. Þorgils vinur minn (húskarl) fór í sendiför til Englands að kaupa föt og nauðsynjavörur fyrir fjölskylduna. Hér er sést Þorgils við kveðjustund á skipsstafni.👋❤️
Fékk menn í heimsókn og þeir sögðu mér að Halli hefði tekið land mitt og eignir og gefið Hildiríðarsonum til afnota. Ég er á leiðinni heim á Sandnes með alla mína menn og mitt lausafé. 😓
Allt er farið á annan endann. Halli kong vill að ég gerist hirðmaður hans á nýjan leik. Hann segir að þá muni enginn rægja mig því að hann veit þá hvernig ég haga mér nótt og dag.😟 Ég vil ekki láta af hendi liðsmenn mína enda eru þeir mínir bestu vinir.
Takk Ölli fyrir að standa með mér á þessum erfiðu tímum. Fólk rægir mig bara vinstri hægri. Gott að vita að Halli trúir ekki svona löguðu. #hatararmunuhata
Hverjir þykist þið vera? Halli konungur (minn besti vinur) mun ekki trúa svona rugli um mig. 🙄 Við skulum ekki dreifa lygum um netið, högum okkur öll eins og fullorðnir einstaklingar.
Það er á vörum allra manna í teitinu að Þórólfur sé líklegur leiðtogi uppreisnar. Vorum líka að segja að Halla kong að Þórólfur sé hermikráka og haldi eftir hlut hans í skattheimtunni. #þorólfurvondi#hallikong
Smá uppfærsla. Við Sigga Sand erum flutt að Torgum ásamt öllu okkar fólki. Hef verið að fjárfesta í vopnum og skipum upp á síðkastið. Haraldur þér er boðið í innflutningsveislu.🍻
Minn heittelskaði vinur, Bárður, lét lífið fyrr í dag. Hvíldu í friði elsku vinur.😥 En ef við lítum á björtu hliðarnar hef ég erft öll hans auðævi ásamt Siggu Sand😉