RÚV rekur Rásir 1 & 2 og Rondó. Við leggjum metnað í að bjóða upp á eins fjölbreytta dagskrá og völ er á og mæta vonum & væntingum landsmanna eftir bestu getu.
Lestarklefinn er nýr umræðuþáttur um menningu og listir sem hefst 26. okt kl. 17:03. Í beinni útsendingu á Rás 1 og sendur út í mynd á sama tíma á https://t.co/wW7AmMWSt7. Umsjónarmenn eru Guðni Tómasson, Guðrún S. Gestsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson og Anna G. Sigurgísladóttir.
Egill Heiðar Anton Pálsson leikstjóri verksins Með gat á hjartanu í laginu eins og guð verður gestur Sigurlaugar Margrétar Jónasdóttur á morgun kl. 9:05 í þættinum Segðu mér. Leikverkið verður flutt á Nýja sviði Borgarleikhússins annað kvöld kl. 20.00. Aðgangur ókeypis. #Rás1
Íslendingar eiga norðurlandamet í barneignum unglingsstúlkna. Hvernig upplifa ungar mæður aðstæður sínar? Í þáttaröðinni Ólétta stelpan á Rás 1 er rætt við ungar mæður á Íslandi. Hlustið á fyrsta þáttinn hér: https://t.co/qUhC1O83Q7
Á síðustu vikum hafa stærstu símafélög landsins í samstarfi við RÚV gert umfangsmiklar ráðstafanir til að tryggja öruggt streymi í kringum HM. Allar nánari upplýsingar má finna hér: https://t.co/tp1z0l0fNG #HMRÚV#FyrirÍsland#ISLNIG
Birnir var gestur Atla Más @RexBannon í Stúdíói 12 þar sem hann tók lögin „Út í geim“ og „Af hverju“. Hér má sjá og heyra: https://t.co/UtJUXecP43 #RABBABARI#Rás2
Nú eru síðustu forvöð að kjósa uppáhalds jólalagið þitt! Fresturinn rennur út á miðnætti í kvöld 13.desember. Hlustið og kjósið hér: https://t.co/b1BewcSTkf #Rás2