Veit ekki hvort er verra, það að ég hafi farið að grenja yfir Húsavíkur laginu í gær eða að ég fái stanslausar mæjónes brauðsallöts auglýsingar í símann minn.
Kveðja,
kona gengin nær 40 vikur.
Þvílíkur dásemdar dagur. Dagurinn byrjaði á covid smitfréttum svo daman er í smitgátt og litla daman í sóttkví. Fór svo til læknis í endaþarmsskoðun til að athuga með gyllinæð. Spennt fyrir fyrsta stíl.
Megi þessi dagur halda áfram að færa mér og ykkur hamingju kæru vinir! ❤
Bóndadagurinn loksins runninn upp. Maður eldaði kvöldmatinn í kloflausum sokkabuxum með rós í munnvikinu. Þvílíkur dýrðardagur.
Til hamingju með daginn bóndar landsins.
Fyrsta utanlandsferðin með barnið: Á leiðinni út: Nei við skulum ekki gefa henni þetta. Það er sykur í þessu.
Á leiðinni heim: Hvað segiru, viltu súkkulaði með jógúrtinu frá Burger King?
#foreldratwitter
Mér finnst ég svo óstjórnlega fyndin, svo fyndin að ég hef fengið blóðnasir í hláturskasti tengt mínum eigin brandara, ég endurtek blóðnasir. Nú velti ég fyrir mér möguleikanum um hvort ég gæti fengið gyllinæð í næsta hláturskasti?
Ræðið.