SOS Children´s Villages - Iceland. SOS Barnaþorpin hafa með hjálp SOS-foreldra útvegað munaðarlausum og yfirgefnum börnum fjölskyldu og heimili síðan 1949.
Jú, við erum hérna ennþá eftr smá pásu og snúum aftur með hrós á ungt fólk á Íslandi. Það er alltaf aðdáunarvert þegar unga fólkið lætur sig varða þörf góðgerðarmál. Vel gert Hrund👏👏
Þráður um afleiðingar jarðaskjálftans á Haítí(1/..)🇭🇹 Á fjarfundi með framkvæmdastjóra SOS Barnaþorpanna á Haítí nú síðdegis kom eftirfarandi m.a. fram:
Mörg börn eru á ráfi um hamfarasvæðið sem hafa orðið viðskila við foreldra sína og vita jafnvel ekki um afdrif þeirra. 👇
Börnin eru mjög berskjölduð fyrir hættum. SOS má ekki nálgast börnin beint undir sinn verndarvæng heldur þarf slíkt að fara í gegnum yfirvöld sem þó eru í sambandi við SOS á staðnum.👇
Þrjú SOS barnaþorp eru á Haítí og viðbúið er að álag á þau muni aukast á næstu dögum, vikum og mánuðum. Ef þú vilt leggja SOS lið þá hvetjum við þig til að gerast SOS-barnaþorpsvinur en mikil þörf er á slíkum styrktaraðilum á Haítí. 👇 https://t.co/vH4hPL7bGN
Dæmi um konu sem SOS á Haítí hefur verið í sambandi við. Konan var áður í fjölskyldueflingu SOS en hafði útskrifast. Hefur nú leitað aftur til okkar. Er með HIV/AIDS, glímir við andleg veikindi og er ein með þrjú börn.
Einnig er verið að útvega tjöld og önnur skýli fyrir fólk sem hefur misst heimili sín." Framundan er endurbygging húsa og skóla. Löng uppbygging framundan.👇
Margir fangar sluppu eða náðu að flýja fangelsi og ganga lausir. Það eykur á ótta almennings.
„Það er mjög margt fólk á götunni hjálparlaust. SOS er í samstarfi við fleiri hjálparsamtök á staðnum og í forgangi er að sinna grunnþörfum fólks, útvega vatn og mat...👇
„Við sjáum börnin en megum ekki nálgast þau beint heldur þarf það að fara í gegnum yfirvöld sem hafa haft samband og beðið SOS um aðstoð.
SOS er að hjálpa þessum börnum. Verið er að undirbúa barnvæn svæði þar sem börn geta haft eitthvað fyrir stafni og fengið sálfræðiaðstoð.👇
Enn fjölgar í aðdáendahópi Íslands. Nú í Eþíópíu!🇪🇹🇮🇸 Systkinin á einu heimilinu í SOS barnaþorpinu í Addis Ababa voru í skýjunum með landsliðstreyjurnar frá @footballiceland https://t.co/fsuxyIFEsn #fotboltinet#soschildrensvillages#Iceland
Við fögnum tvöföldu afmæli á þessu ári.🎂 30 ár eru síðan starfsemi SOS Barnaþorpanna hófst á Íslandi og 70 ár síðan samtökin voru stofnuð í Austurríki. Þá var mikill fjöldi barna munaðarlaus eftir seinni... https://t.co/sIQEDJm6Rc
Carmen afplánar 8 ára fangelsisdóm en hittir dóttur sína reglulega. Dóttir hennar, Costanza, er eitt fjölmargra barna sem eru í umsjá SOS barnaþorpsins Ayacucho í Perú meðan báðir foreldrarnir afplána... https://t.co/Fa3rjIpt4r
Sláið tvær flugur í einu. Verið góð við umhverfið og styrkið gott málefni. Fjölnota pokinn okkar er til sölu í vefversluninni https://t.co/kzZxgfpJOK og á skrifstofunni í Hamraborg í Kópavogi. https://t.co/64wUwiUS8X
Eitt af hverjum 20 börnum á Filippseyjum hefur verið yfirgefið, er munaðarlaust eða vanrækt. Nú hjálpa Fjölskylduvinir SOS á Íslandi illa stöddum börnum á Filippseyjum því nýja... https://t.co/S7lcfCOycj
Það hefur svo sannarlega orðið kúvending á sambandi feðganna og framtíð þeirra er björt, þökk sé fjölskyldueflingu SOS Barnaþorpanna. Mirza er með mikið samviskubit yfir hegðun sinni gagnvart syninum. https://t.co/LFEZ7YagEZ
Vegna fellibyls sem gekk yfir Mósambík og Simbabve um helgina: Öll börn og starfsfólk SOS Barnaþorpanna í þessum löndum eru óhult. Verið er að meta tjón á byggingum í barnaþorpinu í Beira í Mósambík en aðalatriðið er að börnin skaðaði ekki.
Hjá SOS Barnaþorpunum er frábært kerfi sem snýst um að sameina börn og foreldra þeirra eftir aðskilnað eða koma börnunum fyrir hjá öðrum fjöldkyldumeðlimum. Saga Kareems er frábært dæmi um það. https://t.co/X0UZBQNUEW