D6: Ég mæli með hlaðvörpunum Í ljósi sögunnar, Besta platan og Heimskviður. Til lesturs kýs ég ljóð, teiknimyndasögur og vísindaskáldskap fyrir unga sem aldna. #12dagatwitter
D5: Fössari í pizzugerð með syni, laugsari í fótbolta með dóttur og pottur með frúnni nærir mig eftir erilsama kennsluviku. Góð plata á fóni á sunnsa með kolsvart kaffi toppar svo góða helgi #12dagatwitter
D4 #12dagatwitter Öndvegi allra dala örvar hugmyndaflug sem og uppbyggileg samtöl og samskipti við nemendur og samstarfsfólk. Það verður engin kennsla til í tóminu. En í dag er tómið djúpt því Dalvíkurskóla var skellt í lás sökum veirufjandans.
Skrópaði í #12dagatwitter í gær og fyrradag því Jónasarveislan átti hug minn allan. Eg vænti þess að afrakstur Dags íslenskrar tungu í 9.-10. b. Dalvíkurskóla verði verðlaun í Ljóðasamkeppni mms og Krakkarúv. Ljóðið lifir á Dalvík.