@MOrriSchram@andresjons Fyrir kosningarnar 2017 lofuðu XD "100 milljarða innviðauppbyggingu". Aðeins minna talað um hvernig ætti að fjármagna það, en ansi kratísk viðleitni það!
Hæ @aslaugarna! Veistu hvað er líka mannréttindabrot, jafnvel verra en mannanafnalög? Að senda börn á flótta til Grikklands þar sem þeirra bíða engin tækifæri og engin réttindi. Það er brot á Barnasáttmála SÞ, sem Ísland hefur lögfest. Gerðu eitthvað í því!
Það yrðu auðvitað svakalega ófyrirsjáanlegar afleiðingar ef MDE droppaði þeirri sprengju inn í hið evrópska mannréttindakerfi að dómstólar skuli skipaðir á faglegan hátt og í samræmi við lög...
- Bíddu, ertu að segja mér upp?
- Nei, alls ekki, ég ætla einfaldlega að stíga til hliðar.
- Ha?
- Já, mér fannst persóna mín trufla í þessu sambandi. Svo ég ætla að stíga til hliðar.
- Ertu þá að hætta með mér eða ekki?
- Ég er að stíga til hliðar til að eyða óvissu.
Ég er að taka nafnlausa könnun um tví- og pankynhneigð, en hef áhyggjur af því að svör mín verði persónurekjanleg þar sem ég svaraði spurningunni um hvaða fornafn ég kýs að nota sem "Yðar hátign"
Elska þegar fólk talar um hvað "podcast formið" sé yndislegt og það elski að hlusta á "þessa tegund dagskrárgerðar" þegar Rás 1 er búin að gera nákvæmlega þetta í 80 ár.
Skuldastaða @reykjavikur hefur farið lækkandi síðan Sjálfstæðismenn komu síðast að stjórn borgarinnar eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Furðulegt að heyra þau tala um að núverandi meirihluti sé að safna skuldum, vona að fólk biðji um gögn. #heidaRVK
Mogginn sefur ekki af áhyggjum af skuldastöðu borgarinnar. Gott ráð við því er að skoða tölurnar. Hér er súlurit um þróun heildarskulda samstæðu borgarinnar (borgarsjóðs og fyrirtækjanna) á föstu verðlagi. Það gengur vel í borginni. Þannig er það. #betriReykjavik