https://t.co/4V54TVzGEs - Ég skil alveg að menn samgleðjist Þórsurum að halda sér uppi... en er ekki aðeins over the top að setja fimm Þórsara í lið umferðarinnar fyrir að harka út sigur á FH á gervigrasi?
@naglalakk@hodl_ishmael Ég ætla að leyfa mér að fullyrða að hvergi, nokkurs staðar í veröldinni hafi bókasafn verið rekið með hagnaði. Það er beinlínis gegn eðli slíkrar stofnunar. Ég hvet frjálhyggjustaura þessa heims til að finna EITT slíkt dæmi í gjörvallri sögu mannsandans!
@haflidib Rak líka augun í þessa frétt. Þetta var víst níu mánaða gömul frétt eftir Jakob Bjarnar sem var birt sem ný í morgun fyrir slysni og svo eytt þegar mistökin komu í ljós.
@dasgrimsson@Oskarsson07 QPR var að berjast fyrir lífi sínu í deildinni í þessum leik. Og þeir létu virkilega finna fyrir sér. En í lokin þegar úrslitin í öðrum leikjum fóru að berast og ljóst var að þeir væru uppi þrátt fyrir tap, þá slokknaði á þeim. Við höfum séð sambærileg dæmi ótal oft í boltanum.
Man. City sló út Leicester, Notts County, Aston Villa, Reading og Manchester United á leið sinni í úrslitin. Stoke City á ekkert meiri kröfu til bikarmeistaratitilsins 2011 en nokkurt þeirra liða - annað felur í sér mikinn misskilning á fyrirbærinu útsláttarkeppni.