Menntasjóður námsmanna er gallaður! Meirihluti stúdenta á Íslandi hefur ekki efni á því að vera í háskólanámi án launaðrar vinnu meðfram námi og 13% stúdenta á Íslandi búa við fæðuóöryggi - en núna er tækifæri til að breyta þessu! 1/4
Er næsta ritstjóra Stúdentablaðsins að finna hér á Twitter? ✍️
Umsóknarfrestur fyrir stöðu ritstjóra Stúdentablaðsins hefur verið framlengdur til 7. maí nk. og hvetjum við öll áhugasöm til að sækja um!
Ritstjóri hefur yfirumsjón með útgáfu Akademíunnar sem gefin er út í byrjun skólaársins, sem og Stúdentablaðsins sem gefið er út fjórum sinnum á skólaári.
Um er að ræða hlutastarf í mjög skemmtilegu og lifandi umhverfi á skrifstofu Stúdentaráðs, sem staðsett er á Háskólatorgi🥳
Stór sigur! Forseti SHÍ fékk það staðfest í gær frá ráðherra háskólamála að hún muni EKKI leggja fram frumvarp sem heimilar hækkun á skrásetningargjaldinu á vorþingi. Stúdentaráð mun halda baráttu sinni fyrir því að gjaldið verði endurskoðað með tilliti til lækkunar eða afnáms 📣
Forsætisráðherra segir málin til endurskoðunar og að gjaldahækkanir (eins og t.d. á skrásetningargjaldinu) þurfi að skoða mjög vandlega í ljósi mikillar verðbólgu:
Fulltrúar SHÍ fóru að ráðherrabústaðnum í dag og afhentu forsætis-og fjármálaráðherra ítarlega samantekt á málflutningi SHÍ auk spurninga sem snúa að fjármögnun háskólastigsins, skrásetningargjaldinu og næstu skrefum ríkisstjórnarinnar í þeim málum 📣https://t.co/JZmCasrnbW
Mikilvæg árétting.
Menntasjóður námsmanna (áður LÍN) sendi frá sér tilkynningu um að sjóðurinn hefði fyrir mistök ekki sent ákveðna tegund lána til áritunar fyrir opnun skattframtals.
Þetta þarf þú að hafa í huga ef þú fékkst þennan póst.
Þessu þarf að afstýra tafarlaust með því að falla frá kröfum um niðurskurð vegna nemendafækkunar ásamt því að stórauka fjárframlög til Háskóla Íslands.
Sjá nánar hér: https://t.co/Njy7IeTQhB
„Stórauka þarf fjárframlög til Háskóla Íslands til þess að skólinn geti haldið úti grundvallarstarfsemi sinni og að óbreyttu stefnir í alvarlegt ástand. “
Umsögn SHÍ við frumvarp til fjárlaga: https://t.co/Njy7IeTQhB
Þar að auki er nú til umræðu að hækka skrásetningargjaldið sem innheimt er við opinbera háskóla sem liggur í augum uppi að kemur til vegna vöntunar á fjármagni frá stjórnvöldum til þess að halda uppi grunnstarfsemi háskólans.