@tinnaharalds já meinar.. hélt ég væri bara með random nefrennsli. Er vanalega ekki byrjuð að finna mikið fyrr en í júní. Er ekki birkið á þessum árstíma? Kannski er grasofnæmið mitt eitthvað að stökkbreytast
@irg19 hef líka einmitt gert þetta. Hunsaði hluti sem að skipti mig máli því að ég hafði ekki tíma. En ég lærði að ég vil údeila tíma mínum í það sem skiptir mig máli. Í stóru myndinni skiptir ekki máli hvort ég útskrifast á 3 eða 5 árum eða með 7 eða 9 í meðaleinkun.
@ValaArna já ég hefði kannski átt að taka fram að þessar samræður eiga sér stað eftir að hótel hefur fyrirfram sagt að það bjóði upp á vegan morgunverð. Myndi ekki ætlast til einhvers annars
@Sunuson Eru byrjendanámskeið fyrir fullorðna? Sé ekkert svoleiðis. Bý við hliðina á smábátahöfn og myndi elska að kunna að fara út á bát en finn aldrei neitt um hvernig maður byrjar í svoleiðis sporti
Er enginn markaður fyrir sumarnámskeið fyrir fullorðna? Er alveg til í að læra eitthvað random skill í sumarfríinu mínu. Siglinganámskeið, skólagarðar, smíðanámskeið? Count me in í þetta allt saman
@Angurvaki Já elska góð námskeið og tek reglulga námskeið í einhverju algjöru bulli. En það er eitthvað við að fá að mæta klukkan 8-9 um morgun með nesti og vera að braska eitthvað til hádegis um hásumar sem er að heilla mig meira en þriðjudags og fimmtudagskvöld frá janúar og fram í mars.
@hulda_tolgyes Var að vinna í grunnskóla fyrir nokkrum árum og setti einmitt spurningamerki við árlega mjólkurdaginn sem að virtist vera haldinn hátíðlegur 2-3 á ári þar sem kerrum fullum af mjólkurfernum var rúllað inn og gefið börnunum.
Ég get ekki meir, ég er gjörsamlega uppgefin. Það eru komin þrjú ár ÞRJÚ ÁR af lélegum endurgerðum af 90’s eurodance lögum og ég get ekki hlustað á eina sekúndu meir. Það er einn maður sem gertur þetta vel og það er techno faðir vor David Guetta. Annað er óafsakanlegt.
Ég flutti í íbúð með svalalokun síðasta sumar og ef þetta er ekki besta sjálfsblekking íslandssögunar þá veit ég ekki hvað. Er búin að sitja úti á svölum síðustu tvær helgar í svona 25 gráðum með glampandi sól beint í andlitið í gegnum pínulitla rifu. Þvílík bæting á lífsgæðum!
@Audurheimis_ Ég hringdi með svona klukkutíma fyrirvara. “Veistu ég er bara ekki í væbinu að afgreiða djúpsteiktar rækjur í dag. Er örugglega bara hætt eða eitthvað🤷🏼♀️”
Það er svo fyndið að finnast það réttlætanlegt krefjast svara á einhverju sem kemur þér ekki við.
Ætlar þú að svara hvernig sambandið þitt var við mömmu þína á meðan hún gekk í gegnum erfitt tímabil 96-97!?!?
Hvar bjóstu nákvæmlega þegar þú varst í skiptinámi í Berlín?!?!
@ValaArna idk kann smá að meta þetta. Ef að ég verð leigusali ætla ég að gera kröfur um að viðkomandi sé vel tengdur í helstu social grúppur landsins og vilji sitja með mér yfir hvítvíni og gefa mér allt slúðrið beint í æð.
Afhverju erum við meðalgreinda þjóð á þessu guðsvolaða rok skeri ekki að nýta mjóddina betur? Hún hefur svo mikið potential.
-Blómabúðir og alvöru kaffihús (bakarameistarinn er ekki kaffihús)
- „úti” barir
-Gosbrunnur
-Tónleikavenue og KLÚBBUR
Möguleikarnir eru endalausir!